Kallar eftir því að Keir Starmer segi af sér
Leiðtogi skoska Verkamannaflokksins kallar eftir því að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segi af sér. Starmer hefur átt á brattann að sækja eftir að í ljós kom að hann vissi af tengslum Peters Mandelson við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, þegar hann skipaði þann fyrrnefnda sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum.