Fyrstu fulltrúar Íslands
Genuine Cup, mót fyrir knattspyrnufólk með þroskahamlanir fer fram í Texas í næstu viku og í fyrsta sinn á Ísland þar fulltrúa. Fjórtán manna úrvalslið úr hópum Stjörnunnar-Asparinnar og Suðra heldur til Bandaríkjanna um helgina eftir strangt æfingaferli.