Erna Hrönn: Ljúfir Fleetwood Mac tónar í beinni
Stefanía Svavars og Kristján Grétars sögðu hlustendum frá væntanlegum tónleikum þar sem hljómplatan „Rumours“ með Fleetwood Mac verður flutt í heild sinni ásamt helstu gullmolum sveitarinnar. Þau gáfu okkur forsmekkinn með fallegum flutningi á laginu „Little lies“.