Vilja ekki dragast inn í víðtækara stríð
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði í dag að Bretar muni vinna með bandamönnum sínum að áætlun sem miðar að því að opna Hormússund á ný. Hann muni aftur á móti ekki láta Bretland dragast inn í víðtækara stríð. Þetta voru viðbrögð Starmers við þeirri kröfu sem Donald Trump Bandaríkjaforseti setti í gærkvöldi fram um að bandamenn bandaríkjanna sendu herskip til Hormússunds til að opna þessa mikilvægu olíuflutningaleið.