Konukot flytur í Ármúla
Deildarstjóri málaflokks heimilislausra í Reykjavík segir mikið framfaraskref stigið með opnun nýs Konukots. Þar verður neyðarathvarf fyrir konur en einnig sex tímabundin húsnæðisúrræði. Hún segist skilja áhyggjur nýrra nágranna en vonast eftir góðu samstarfi.