Íslenski boltinn

FH fær miðvörð aftur heim

Sindri Sverrisson skrifar
Arnór Gauti Úlfarsson er kominn heim í Krikann.
Arnór Gauti Úlfarsson er kominn heim í Krikann. FH

FH-ingar hafa endurheimt miðvörðinn Arnór Gauta Úlfarsson sem leikið hefur í Lengjudeildinni í fótbolta síðustu þrjú ár.

Arnór Gauti, sem er 23 ára gamall og getur leyst öll hlutverk í vörninni, skrifaði undir samning til þriggja ára við FH.

Hann lék með Grindavík síðustu tvö tímabil og áður ÍR og Þrótti Vogum en er uppalinn FH-ingur og á að baki átta leiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Við erum mjög ánægðir með að hafa náð í Arnór. Hann er fljótur og aggresívur miðvörður, hefur staðið sig vel í Lengjudeildinni undanfarin ár og tilbúinn að taka skrefið í Bestu deildina. Síðan er það alltaf ánægjulegt að fá FH-inga heim, Arnór með stórt FH-hjarta og mun hjálpa okkur mikið í þeirri baráttu sem fram undan er hjá okkur,“ er haft eftir Davíð Þór Viðarssyni, yfirmanni fótboltamála hjá FH, á miðlum félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×