Tónlist

Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Rapparinn Daniil og poppstjarnan Alaska létu sig ekki vanta í útgáfuteiti Marons Birnis.
Rapparinn Daniil og poppstjarnan Alaska létu sig ekki vanta í útgáfuteiti Marons Birnis. Guðfinna Birta Valgeirsdóttir

Það var góð stemning í húsakynnum Tónhyls þegar ungstirnið og tónlistarmaðurinn Maron Birnir fagnaði útgáfu plötunnar Í fyrsta sinn. Maron Birnir skaust upp á stjörnuhimininn fyrir nokkrum árum síðan og er í dag ein heitasta poppstjarna landsins.

Maron Birnir var farinn að koma fram víðs vegar um bæinn sem unglingur með félögum sínum í Tónhyl Akademíu og frægðarsól hans fór fljótt að skína skært. Hann hefur unnið hörðum höndum að plötunni undanfarið og lét meira að segja flúra titil plötunnar á magann á sér.

Vinir, fjölskylda og fjöldi þekktra andlita mættu í útgáfuteitið til að samgleðjast honum. Maron tók nokkur lög af plötunni við góðar undirtektir en þetta er fyrsta sóló-platan sem hann gefur út og sveif hann um á bleiku skýi við þessi tímamót. Í salnum mátti sjá tónlistarfólk á borð við Daniil og Alaska og drengirnir úr Tónhyl Akademíu létu sig ekki vanta.

Hér má sjá vel valdar myndir frá teitinu:

Maron Birnir tók lög af plötunni.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Maron nýtur sín vel á sviðinu.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Platan ber heitið Í fyrsta sinn.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Lindi Banushi og vinir í gír.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Sólveig Scheving, Tinna og Eva Rúnars.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Sólveig og Egill Airi.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Fjör.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Kristján Sturla og Andri Már.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Jón, Helgi T og Pétur Atli.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Vignir Vatnar og Daniil.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Egill Airi og Maron Birnir.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Bræðurnir Leó Ernir og Maron Birnir Reynissynir og Arnór Snær á milli þeirra.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Kristján Sturla og Maron Birnir.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Strákar í stuði.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Arnór Snær og Siggi Stebbi.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Helgi T tróð upp.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Alaska og Tryggvi Þór glæsileg.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Birkir, Leó Ernir, Logi Páll og fleiri meistarar.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
Sumir voru svo á leið beint í Hrekkjavökuteiti.Guðfinna Birta Valgeirsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.