Spurðu stuðningsmenn Man United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2026 07:31 Lisandro Martinez, leikmaður Manchester United, fær rauða spjaldið í síðasta leik á móti Chelsea. AP/Ian Walton Þeir hækka ekki mikið í verði leikmenn Manchester United þessa dagana enda hefur liðið aðeins unnið einn af fyrstu níu deildarleikjum sínum og ekki unnið leik í öllum keppnum síðan 10. september.
Þetta er versta byrjun félagsins í fjóra áratugi og alvarlegur skortur á sjálfstrausti hjá liði sem virðist brotna við fyrsta mótlæti þessa dagana. En það hljóta einhverjir leikmenn að eiga það skilið að klæðast áfram búningi félagsins. Hörðustu dómararnir eru oft stuðningsmenn félaganna á myrkum tímum eins og á Old Trafford í dag. Sport Bible fór af stað og hitti á nokkra harða stuðningsmenn Manchester United og spurði út í hvaða leikmenn United eiga skilið að vera áfram. Sá fyrsti nefndi varnartröllið Harry Maguire sem hann telur að hafi gert góða hluti fyrir félagið. Einn heldur því fram að Benjamin Sesko sé betri en Erling Haaland en það er væntanlega fámennt í þeim klúbbi. Það má heyra nöfn eins og Bruno Fernandes, Benjamin Sesko, Matheus Cunha og Bryan Mbeumo en stuðningsmennirnir eru ekki mikið að nefna þá sem spila aftar á vellinum. Svo eru það þeir sem vilja bara allsherjarhreinsun í leikmannahópnum. „Mér finnst við bara ekki vera með neina heimsklassa leikmenn,“ sagði einn. „Þeir eru bara ekki nógu góðir,“ sagði einn gamalreyndur sem þekkir svo sannarlega betri tíma hjá félaginu. „Sjáðu bara Chelsea. Þeir voru með nokkra slaka leikmenn en losuðu sig bara við þá eitt sumar. Af hverju getum við það ekki? Ef við værum klúbbur með alvöru metnað til að vera stór klúbbur þá ættum við að haga okkur eins og stór klúbbur,“ sagði sá sem vill sjá brunaútsölu. Hann var ekki hættur. „Það eru nokkrir leikmenn búnir að vera hér alltof lengi. Þeir voru kannski ágætir einu sinni en Luke Shaw er búinn að vera hjá félaginu síðan 2014. Hann ætti ekki að spila fyrir United árið 2016.“ „Við ættum að halda Bruno [Fernandes], [Benjamin] Sesko, [Matheus] Cunha og [Bryan] Mbeumo. Ég er hrifinn af þeim, þeir eru góðir,“ sagði einn sem er sáttur við sóknarvopn félagsins. „Vandamálið er tvíþætt þegar kemur að leikmannahópnum. Suma vantar rétta hugarfarið en aðra vantar gæðin. Við getum unnið deildina en til þess þurfum við nokkra góða félagsskiptaglugga í viðbót. Við vinnum ekki neitt með þessum leikmönnum,“ sagði stuðningsmaður sem hefur mikið til síns máls. Það má annars sjá innslagið hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
Enski boltinn Manchester United Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Sjá meira