Fótbolti

Andreulegt upp­legg í sigri Anderlecht

Sindri Sverrisson skrifar
Andrea og stöllur fagna eftir markið sem réði úrslitum í dag.
Andrea og stöllur fagna eftir markið sem réði úrslitum í dag. @rscawomen

Íslendingaliðið Anderlecht fagnaði 1-0 sigri gegn Mechelen í 16-liða úrslitum belgísku bikarkeppninnar í fótbolta kvenna og voru Íslendingar áberandi í leiknum.

Andrea Rut Bjarnadóttir og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir voru báðar í byrjunarliði Anderlecht og átti Andrea stóran þátt í sigurmarkinu.

Hún fékk boltann við vítateigshornið hægra megin og sendi svo þvert fyrir markið þar sem Shari Van Belle átti auðvelt með að koma boltanum yfir línuna. Markið má sjá hér að neðan með því að fletta.

Vigdís Lilja var nálægt því að skora sömuleiðis en mark hennar var dæmt af.

Anderlecht er engu að síður komið áfram í 8-liða úrslitin auk þess sem liðið er á toppi belgísku úrvalsdeildarinnar eftir sjö umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×