Sport

Dag­skráin í dag: Risaleikur á Anfield og tíma­mót í For­múlu 1

Sindri Sverrisson skrifar
Alexander Isak reynir að finna glufur á vörn Arsenal í stórleik á Anfield í dag.
Alexander Isak reynir að finna glufur á vörn Arsenal í stórleik á Anfield í dag. Getty

Það eru góðar líkur á því að nýr heimsmeistari verði krýndur í Formúlu 1 í kvöld og í enska boltanum er stórleikur á milli Liverpool og Arsenal. Það er því nóg um að vera á sportrásum Sýnar í dag.

Bein útsending vegna leiks Liverpool og Arsenal hefst á Sýn Sport klukkan 16 en leikurinn sjálfur hefst hálftíma síðar. Fulltrúar stöðvarinnar verða á Anfield og fylgjast með því hvort Arsenal kemst á topp úrvalsdeildarinnar eða hvort Liverpool tekst að blanda sér í titilbaráttuna.

Umferðin í enska boltanum verður svo gerð upp í Sunnudagsmessunni að leik loknum, eða um klukkan 18:35.

Ítalinn Kimi Antonelli þarf svo bara tvö stig til þess að tryggja sér sinn fyrsta heimsmeistaratitil í Formúlu 1 og verða þannig yngstur í sögunni til þess að landa titlinum. Bein útsending frá keppninni í Mexíkó hefst klukkan 19:30 á Sýn Sport Viaplay.

NFL verður svo að vanda áberandi með leikjum Bills og Ravens, og Broncos og Chiefs, á Sýn Sport 2 en NFL Red Zone verður á sínum stað á Sýn Sport 3 klukkan 17:55.

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir verður svo á ferðinni með Bayern München í bikarleik gegn Leverkusen í Þýskalandi, klukkan 14 á Sýn Sport Viaplay.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×