Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2026 09:01 Bruno Fernandes átti hræðilegt kvöld í miðri viku. Hann átti slakan leik, Manchester United steinlá og svo var brotist inn heima hjá honum. EPA/ADAM VAUGHAN Þeir sem héldu að miðvikudagskvöldið hefði verið eitt af verstu kvöldum ársins hjá fyrirliða Manchester United vissu ekki hálfa söguna.
Það er ekki nóg með að Bruno Fernandes hafi verið heillum horfinn í skellinum vandræðalega við Como-vatn heldur var brotist inn á heimili Fernandes á meðan Man United var að spila. Lögreglan rannsakar innbrot á heimili Bruno Fernandes sem átti sér stað þegar hann var á heimleið frá Ítalíu með Manchester United eftir tap gegn Como. Talið er að fjölskylda Fernandes hafi ekki verið heima á þeim tíma og lögreglan mætti fljótt á vettvang. Fernandes has home burgled while in Italy with Man Utd https://t.co/QxeKM83PZe— BBC News (UK) (@BBCNews) October 22, 2026 „Um klukkan 20:30 miðvikudaginn 21. október var lögreglu tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir við heimilisfang á Alderley Park-svæðinu í Nether Alderley. Sá sem hringdi tilkynnti um þrjá óþekkta menn í bakgarði nágrannaeignar,“ segir í yfirlýsingu frá lögreglunni í Cheshire. „Lögreglumenn fóru á vettvang en við komu fundust engin ummerki um hina grunuðu. Lögreglumenn komust hins vegar að því að brotist hafði verið inn á heimilið og nokkrum munum stolið. Rannsókn á málinu er hafin og hún stendur enn yfir.“ Þetta hörmulega kvöld á Ítalíu þýddi að Bruno og félagar hafa ekki fagnað sigri í síðustu sjö leikjum. Fernandes setti eftir leikinn spurningarmerki við nálgun knattspyrnustjórans Michael Carrick. Úrslitin, ásamt ummælum Fernandes, höfðu vakið alvarlegar spurningar um framtíð Carrick fyrir heimaleikinn gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag, en hann mun áfram stýra liðinu í þeim leik. Fyrirliðinn Fernandes hefur verið aðeins svipur hjá sjón miðað við frammistöðu sína á síðasta tímabili það sem af er þessu tímabili. Fernandes fullyrti að það hefði verið ákvörðun þjálfarateymisins „að pressa ekki maður á mann og skilja stundum eftir smá svæði fyrir aftan“ í Como. 🚨 𝗕𝗥𝗘𝗔𝗞𝗜𝗡𝗚: Bruno Fernandes' home in Cheshire was BURGLED last night while he was playing for Manchester United against Como. Bruno and his wife Ana are devastated by the incident. — @TheSun https://t.co/IHqhnA9NMy— The Touchline | 𝐓 (@TouchlineX) October 22, 2026
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Fleiri fréttir Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Sjá meira