Atvinnulíf

Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Björn Ingi Pálsson, sölu- og rekstrarstjóri Hentar rekstrarleigu Öskju, segir ótrúlega gaman að skella sér út fyrir þægindarrammann eins og hann gerði í haust þegar hann skellti sér í popkór Íslands – Vocal Project. Gamli draumurinn var samt So You Think You Can Dance í Hollywood.
Björn Ingi Pálsson, sölu- og rekstrarstjóri Hentar rekstrarleigu Öskju, segir ótrúlega gaman að skella sér út fyrir þægindarrammann eins og hann gerði í haust þegar hann skellti sér í popkór Íslands – Vocal Project. Gamli draumurinn var samt So You Think You Can Dance í Hollywood. Vísir/Anton Brink

Háleitustu æskudraumar Björns Inga Pálssonar, sölu- og rekstrarstjóra Hentar rekstrarleigu Öskju, voru engir smá. Því hann stefndi á heimsfrægð í dansi, hvorki meira né minna. Nýjasta nýtt hjá Birni er að syngja í pop-kór.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Mér finnst alveg ótrúlega gott að liggja aðeins uppi í rúmi áður en ég fer á fætur. Það er þó ekki alltaf í boði, enda er fimm ára dóttir mín oft búin að ákveða að nú sé kominn tími til að hefja daginn. Konan mín er algjör morgunhani og yfirleitt komin á fætur hálftíma á undan mér. 

Ég skríð svo fram úr einhvern tímann á milli sjö, fimmtán og sjö, fjörutíu og fimm, allt eftir því hvenær heimilisfólkið ákveður að ég hafi sofið nóg.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég byrja yfirleitt á því að renna aðeins yfir daginn í huganum áður en ég fer fram úr. En það fyrsta sem ég geri í raun er að græja morgunmat fyrir krakkana. Við reynum að setjast saman og spjalla aðeins um hvað dagurinn ber í skauti sér.“

Hver var háleitasti æskudraumurinn þinn?

Ég ætlaði mér ekkert minna en að flytja til Bandaríkjanna og verða frægur dansari í So You Think You Can Dance. 

Þetta var í fullri alvöru planið alveg fram undir tvítugt. 

Ég hafði æft samkvæmisdansa frá þriggja ára aldri, orðið margfaldur Íslandsmeistari og keppt fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótum, þannig að ég taldi mig nú eiga fullt erindi í þáttinn! 

Hollywood hefur reyndar ekki enn hringt, en ég er alveg opinn fyrir samtalinu!“

Björn Ingi segir sína hugleiðslu felast í að fara út og bóna bílinn. Að fara yfir verkefni dagsins finnst honum þægilegast yfir morgun kaffibollanum. Dagskráin getur þó byrjað að riðlast áður en sá bolli er búinn.Vísir/Anton Brink

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Í einkalífinu er stærsta verkefnið líklega að finna þetta margumtalaða jafnvægi milli vinnu, fjölskyldu og þess að eiga smá tíma fyrir sjálfan sig. Við Sólveig konan mín eigum þrjú börn sem eru öll í íþróttum og stundum líður manni eins og maður sé meira í skutli en heima hjá sér.

Ég kláraði tvö hundruð tíma jógakennaranám fyrir ekki svo löngu og reyni að vera duglegur að mæta á dýnuna. 

Svo ákvað ég í haust að prófa eitthvað alveg nýtt og skellti mér í popkór Íslands – Vocal Project. Það er ótrúlega gaman að fara aðeins út fyrir þægindarammann og gera eitthvað allt annað en maður er vanur.

Svo á ég líka mitt eigið litla „me-time“ sem felst í því að fara út og þrífa bílinn. Þá set ég góða tónlist eða skemmtilegt hlaðvarp í eyrun og dunda mér í rólegheitunum. 

Ég elska að bóna bílinn, en það allra besta er að strjúka yfir silkimjúkt lakkið á nýbónuðum bílnum og finna þessa dásamlegu bónlykt. 

Þetta er eiginlega mín útgáfa af hugleiðslu!

Í vinnunni er svo nóg að gera við að koma nýjum rafmagnsbílum í rekstrarleigu fyrir mánaðamótin. Breytingar á styrkjum Orkusjóðs komu með skömmum fyrirvara og hafa kallað á talsverðar breytingar á verðlistum og tilboðum. Það er því engin hætta á að manni leiðist þar heldur.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég byrja yfirleitt daginn á góðum kaffibolla, sest niður og fer yfir tölvupóstana og það sem er fram undan næstu fimm vinnudaga. 

Mér finnst gott að hafa yfirsýn og vita hvað þarf að klárast svo allt gangi smurt fyrir sig. 

Svo tekur raunveruleikinn auðvitað við og breytir planinu reglulega áður en kaffibollinn er búinn, yfirleitt næ ég nú ekki einu sinni að klára bollann.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Það er svolítið misjafnt, en ég reyni yfirleitt að vera kominn upp í rúm um tíu þrjátíu. Hvort ég fari svo strax að sofa er önnur saga.“


Tengdar fréttir

Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp

Í fimmtán ár hefur Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Kosmos, stefnt að því að fara í ræktina á morgnana. En snúsar frekar. Aðra hverja viku upplifir hún sig eins og vel undirmannaða í Home Alone-kvikmynd.

Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK sam­setningar

Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, er afrekskona í Ikea- og JYSK samsetningu. Brynja segir morgnana heima hjá sér hálfgerðan sirkus. Eða jafnvel morgunlottó.

Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef...

Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×