Áskorun

50+: Sjúkdómasamkeppnin í matar­boðinu

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er eðlilegt að umræðuefnin breytist í góðum vinahópum sem um árabil hafa hist reglulega í matarboðum. En hversu langan tíma á heilsutalið að fá?
Það er eðlilegt að umræðuefnin breytist í góðum vinahópum sem um árabil hafa hist reglulega í matarboðum. En hversu langan tíma á heilsutalið að fá? Vísir/Getty

Það er stemning í loftinu þegar við mætum í matarboðið. Með vel valda vínflösku undir hendinni og litla tækifærisgjöf.

Vinahópurinn þekkist vel – það er alltaf mikið hlegið og gaman þegar þessi hópur hittist. Ferðalög, helstu fréttir og pólitík og umræður um nýjustu þættina, gagnrýni eða menningu.

Líka alltaf einhver sem lumar á góðri slúðursögu.

Þegar dýrindis krásir eru komnar á borðið segir einn í hópnum frá meiðslum á hné. Mögulega í framhaldi af síðasta bakgarðshlaupi.

Þar með er samkeppnin hafin.

Því einhvers staðar þarna upp úr 50+ urðu blóðþrýstingur, hormónabreytingar, svefntruflanir, hné, bak, mígreni og mjaðmir að umræðuefni. Til viðbótar jafnvel heilsufar foreldra okkar og annarra náinna vina og vandamanna.

Ekkert okkar samþykkti þetta þó.

Enginn fundur var haldinn.

Samt sitjum við þarna og berum saman liðþófa eins og aðrir bera saman bíla.

Leyfum okkur meira að segja að búa til hlutverkatýpur við matarborðið:

Dr. Gervigreind: Sá í hópnum sem hefur ekki lært læknisfræði en lesið sér mikið til um alls konar og er hvað framarlegastur í notkun gervigreindar. Þú nefnir að þú sért með verk í öxlinni og viðkomandi getur einfaldlega komið með þrjár góðar greiningar á svipstundu.

Blóðþrýstingsvinurinn: Þessi sem veit töluna sína. Alltaf. Talar líka eins og hámenntaður lyfjafræðingur og getur gefið öllum góð ráð um málaflokkinn. Heilt yfir.

Fæðubótarboðberinn: Þessi tekur D-vítamín, ómega-3, magnesíum og kollagen og hreinlega veit að allt breyttist um leið og hann/hún byrjaði á þessu eða hinu. Vinahópurinn fær því óumbeðin ráð um hvað hver og einn ætti að leggja áherslu á að taka inn.

Endurbætta módelið: Þetta er vinurinn sem er búinn að fara í einhverjar aðgerðir. Jafnvel ermi. Heilsa, útlit og lífsstíll var uppfært með einni stórri uppfærslu. Mögulega er meira að segja eitthvað meira á döfinni. Dagsetningar eru nefndar og tímalína dregin upp.

Sá sem hefur það fínt: Það er síðan alltaf einhver í vinahópnum sem hefur það alltaf fínt. Finnur ekki fyrir neinu. Stendur síðan upp og stynur. Hálftíma síðar kemur sagan um bakið.

Loks er það bjargvætturinn: Sem einfaldlega spyr hvort allir hafi séð þáttinn sem allir eru að tala um. Við elskum þennan vin. Þurfum helst fleiri svona í hópinn.

Er þetta slæm þróun?

Eða kannski eitthvað aldurstengt væl?

Nei, alls ekki.

Því auðvitað felst ákveðin huggun í því að heyra að maður sé ekki einn með stirðleika á morgnana eða að glíma við eitthvað. Enginn er undanþeginn og stundum getur svona vinaspjall jafnvel orðið til þess að einhver bókar tíma hjá lækni eða í krabbameinsskoðun – eitthvað sem hafði verið trassað lengi.

Áskorun vinahópa snýst hins vegar um að ofgera ekki þessu tali. Hér eru hugmyndir að nokkrum ráðum.

  • Ein umferð. Heilsuspjallið fær sína umferð, tíu mínútur eða svo. Svo er skipt um gír.
  • Spurðu um annað. „Hvað er skemmtilegast hjá þér þessa dagana?“ virkar ótrúlega vel.
  • Ráðleggingar um lyf eða bætiefni frá gestum í matarboði eru ekki sérfræðiálit. Ræddu við lækni eða lyfjafræðing.
  • Bókaðu tímann. Ef einhver á borðinu hefur áhyggjur af einhverju þá er besta ráðið að hringja á morgun, ekki ræða það í þriðja skiptið yfir eftirréttinum.

P.s. Og farðu nú ekki að stressa þig á því að mátast við eina týpuna hér að ofan. Því satt best að segja eiga flestir í hópnum 50+ sína eigin útgáfu.

50+

Tengdar fréttir

50+: Ósjál­fráða vina­hreinsunin eftir fimm­tugt

Það eru ótrúlega margir sem tala um þetta og enn fleiri sem upplifa þetta: Einhvers konar vinahreinsun á sér stað um og eftir fimmtugt. Án þess að hér sé haldinn einhver formlegur fundur þar sem ákvarðanir eru teknar eða fólk á í einhvers konar stefnumótun með sjálfu sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.