Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Heimkoma Reykjavík 26. október 2026 08:30 Hörður Harðarson, framkvæmdastjóri Heimkomu telur sameign geta stuðlað að betri nýtingu húsnæðis þegar fjölskyldur sem annars hefðu keypt hver sína lítið notuðu aukaíbúð sameinist um eina. Fólk sem kemur reglulega til Reykjavíkur getur eignast sinn samastað í borginni án þess að kaupa heila íbúð. Heimkoma Reykjavík býður eignarhluti í fullbúinni íbúð á Heklureit. Hverjum hlut fylgja 42 dagar, það er sex vikur á ári, sem eigandinn hefur til ráðstöfunar. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og umsýslu.
Fyrir fólk af landsbyggðinni og Íslendinga búsetta erlendis er Reykjavík oft tíður áfangastaður. Ferðirnar geta verið vegna vinnu, læknisheimsókna, fjölskyldu eða menningarviðburða og hver dvöl mislöng. Að kaupa og reka heila íbúð er hins vegar mikil skuldbinding ef hún verður aðeins nýtt hluta ársins. „Við teljum að þetta geti höfðað vel til fólks sem vill eiga sinn stað en sér ekki ástæðu til að kaupa heila eign miðað við fyrirhugaða notkun. Það vill geta komið aftur á sama stað, þekkt íbúðina og haft allt til staðar fyrir dvölina,“ segir Hörður Harðarson, framkvæmdastjóri Heimkomu. Fallegt útsýni er frá Heklureitnum. Heimkoma hóf starfsemi sína með því að bjóða fólki að eiga vönduð frístundahús í sameign. Hugmyndin var að gera fleirum kleift að eignast sinn stað án þess að binda yfir 100 milljónir króna í sumarhúsi sem væri aðeins nýtt lítinn hluta ársins. Frístundahús Heimkomu má skoða á heimkoma.app. Lausnin í Reykjavík varð til í framhaldi af áhuga fólks á landsbyggðinni, sem lýsti þörf fyrir sambærilegt fyrirkomulag í höfuðborginni. Sama hugmynd um að deila kaupverði, rekstri og umsjón var þannig færð úr frístundahúsum yfir í borgaríbúð. Eignarhald í samræmi við þörfina Kaupendur verða þinglýstir eigendur að sínum hlut í íbúðinni. Boðið er upp á átta 12% eignarhluti en Heimkoma heldur 4% hlut. Eigendur deila rekstrarkostnaði við eignina og velja dvalartíma í bókunarkerfi Heimkomu samkvæmt skýrum reglum. „Hverjum eignarhlut fylgja 42 dagar á ári til ráðstöfunar. Sé þörfin meiri er hægt að kaupa tvo eða fleiri hluti og fá þannig fleiri daga. Hugmyndin er að fólk geti hagað eignarhaldinu eftir því hversu mikið það hyggst nýta íbúðina. Ef eigendur þurfa ekki alla þá daga sem þeir eiga, geta þeir leigt út hluta af sínum dögum og þannig losnað við rekstrarkostnaðinn og jafnvel haft tekjur af eigninni,“ segir Hörður. Fullbúin íbúð á Heklureit Fyrsta íbúð Heimkomu í Reykjavík er í nýbyggingu við Laugaveg 170 á Heklureit. Hún er á fjórðu hæð og verður afhent með húsgögnum, heimilistækjum og húsbúnaði. Í henni eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Inn af aðalsvefnherberginu eru sérbaðherbergi og fataherbergi. Íbúðirnar á Heklureitnum eru í byggingu. Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið alrými með útgengi á svalir. Sérþvottahús er í íbúðinni og henni fylgir einkastæði með rafhleðslu í bílakjallara. Staðsetningin gefur eigendum færi á að ganga niður Laugaveginn, hitta fjölskyldu og vini eða njóta menningarlífsins og koma svo aftur í sína íbúð. Íbúðin er björt og opin. Kostnaðurinn deilist á eigendur Kaupverð eignarhlutar er 14,4 milljónir króna, með húsgögnum og húsbúnaði. Áætlaður mánaðarkostnaður er um 25 þúsund krónur á hlut, með þjónustu Heimkomu. Sú áætlun nær meðal annars yfir rafmagn, hita, tryggingar, fasteignagjöld, hússjóð, viðhald og framlag til endurnýjunar húsgagna og húsbúnaðar. Heimkoma heldur utan um reksturinn og þau verkefni sem fylgja eigninni. „Fastur rekstrarkostnaður dreifist á fleiri eigendur og hver þeirra bindur minna fé en við kaup á heilli íbúð. Eigendurnir þurfa heldur ekki sjálfir að skipta með sér viðhaldsverkefnum eða daglegu utanumhaldi. Það er hlutverk Heimkomu,“ segir Hörður. 42 dagar sem má dreifa á fleiri heimsóknir Þessir 42 dagar jafngilda sex vikum á ári, en eigendur eru ekki bundnir við að bóka alltaf heila viku eða sömu tímabil ár eftir ár. Dögunum má dreifa á fleiri heimsóknir, hvort sem um er að ræða styttri ferðir eða lengri dvöl. Lengd hverrar bókunar fer eftir tímabili og bókunarreglum. Þannig geta eigendur skipulagt ólíkar ferðir yfir árið. Bókanir eru eðli málsins samkvæmt háðar framboði og því að eigandinn eigi næga daga til ráðstöfunar. Íbúð Heimkomu á Akureyri. Íbúðin er fallega innréttuð og gefur mynd af því hvernig íbúðirnar á Heklureitnum munu líta út. Hver fær jólin og sumardagana? Þegar fleiri deila íbúð vaknar eðlilega spurningin hvort allir vilji koma á sama tíma. Hörður segir reglurnar ætlaðar til að dreifa eftirsóttum tímum milli eigenda. „Meginreglan er að sá sem bókar fyrst fær tímann, að því gefnu að bókunin samræmist reglunum. Að jafnaði getur sami eigandi til dæmis ekki bókað jólin tvö ár í röð. Reglur gilda einnig um skiptingu daga milli háannatíma og lágannatíma og lengd samfelldrar dvalar.“ Íbúð Heimkomu á Akureyri. Íbúðirnar í Reykjavík verða búnar húsgögnum í sama stíl. Hann segir mikilvægt að fólk átti sig á að sameign krefjist sveigjanleika. „Allir geta ekki alltaf fengið hvaða dag sem þeir vilja. Á móti deilir fólk kaupverði og rekstri með öðrum og fær faglega umsjón með eigninni.“ Ólíkar þarfir hjálpa til Hörður segir að í samtölum við hundruð einstaklinga í undirbúningi Heimkomu hafi komið skýrt fram hversu ólíkar þarfir fólks séu. Sumir sækist eftir helgum en aðrir þurfi helst íbúð í miðri viku. Svefnherbergi Heimkomu í Húsafelli. „Sumir vilja koma yfir sumarið en aðrir frekar á vorin eða haustin. Sumir heimsækja börn og barnabörn, aðrir koma vegna vinnu eða læknisheimsókna. Ólíkar þarfir geta hjálpað til við að dreifa notkuninni. Þegar óskir skarast gilda reglurnar.“ Frá Húsafelli. Fleiri geti nýtt sömu íbúð Hörður telur sameign geta stuðlað að betri nýtingu húsnæðis þegar fjölskyldur sem annars hefðu keypt hver sína lítið notuðu aukaíbúð sameinist um eina. Of snemmt sé þó að fullyrða um mælanleg áhrif á húsnæðisframboð eða verð. „Markmiðið er að gera fólki kleift að eiga vandaða eign á forsendum sem henta lífi þess. Fyrir eigandann er ávinningurinn áþreifanlegur: að koma á stað sem maður þekkir, þar sem allt er til staðar og tilbúið fyrir dvölina.“ Nánari upplýsingar um íbúðina, verð og fyrirkomulag eru á íbúðarsíðu Heimkomu. Áhugasamir geta einnig bókað kynningarfund til að fara yfir hvort eign henti þeirra þörfum.
Fasteignamarkaður Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira