Handbolti

Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar

Aron Guðmundsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur nú orðið Þýskalandsmeistari með Magdeburg í þrígang.
Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur nú orðið Þýskalandsmeistari með Magdeburg í þrígang. Getty/Hendrik Schmidt

Íslensku landsliðsmennirnir í handbolta, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon, voru markahæstu leikmenn Magdeburgar í sigri liðsins gegn Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni í dag. 

Stuttgart hafði byrjað tímabilið vel í þýsku úrvalsdeildinni og átti stórlið Magdeburgar von á snúnum leik og það varð raunin. 

Leikurinn bauð upp á mikla spennu að lokum var það Magdeburg sem vann eins marks sigur 29-28. 

Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússonar reyndust mikilvægir fyrir Magdeburg í dag líkt og raunin er jafnan. 

Gísli Þorgeir var markahæstur í liði Magdeburgar með sjö mörk og þá gaf hann þrjár stoðsendingar. Ómar Ingi Magnússon skoraði síðan sex mörk og gaf eina stoðsendingu. Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað hvað markaskorun varðar.

Með sigrinum er Magdeburg í 3. sæti með 14 stig eftir átta umferðir. Stuttgart er í áttunda sæti með níu stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×