Sýndu fljúgandi Roadster Samúel Karl Ólason skrifar 16. október 2026 09:55 Roadster var sýndur stökkva yfir aðra bíla Tesla og snúast í loftinu. Tesla Forsvarsmenn Tesla opinberuðu í gærkvöldi endurhannaðan Roadster-bíl fyrirtækisins sem hefur verið í hönnun í meira en níu ár. Bíllinn var sýndur keyra á hvolfi, nota eins konar þotuhreyfil og svífa til jarðar, svo eitthvað sé nefnt.
Upprunalega var Roadster seldur frá 2008 til 2012 og var fyrsti rafmagnsbíll Tesla og forveri Model Y og annarra bíla Tesla. Önnur útgáfan, sportbíllinn, var svo fyrst opinberuð árið 2017. Þá tók Tesla á móti forpöntunum upp á fimmtíu og 250 þúsund dali fyrir sérstök eintök af sportbílnum, sem átti að fara í framleiðslu árið 2020. Sjá einnig: Tesla Roadster verður 1,9 sek. í 100 og kemur árið 2020 Það rættist ekki úr því en síðan þá hefur bíllinn gengist umtalsverða endurhönnun. Hann lítur töluvert öðruvísi út en upprunalega útgáfan, sem Musk sendi út í geim í febrúar 2018. Nú þykir bíllinn líkari Cybertruck en upprunalegu útgáfunni en sá bíll reyndist verulega umdeildur. Roadster er tveggja sæta og á að geta náð hundrað kílómetra hraða á innan við sekúndu. Hámarkshraði bílsins á að vera um 370 kílómetrar á klukkustund. 0-60 mph in 0.81 seconds https://t.co/7Pp4oqJVzq— Tesla (@Tesla) October 16, 2026 Þá á Roadster að geta ferðast um 480 kílómetra á einni hleðslu en það er töluvert minna en upprunalega stóð til. Roadster er þróaður af bæði starfsmönnum Tesla og geimfyrirtækinu SpaceX en Musk er sagður vilja sameina fyrirtækin í framtíðinni. Kynningin fór fram í eldflaugatilraunastöð SpaceX í Texas. Hana sótti fjöldi fólks og þar á meðal fólk sem hafði greitt 250 þúsund í forpöntun fyrir níu árum. Biðin verður þó lengri, þar sem Musk tilkynnti á kynningunni að framleiðsla Roadster hæfist ekki fyrr en árið 2028. Meðal þess sem sást þar var þegar Roadster ók upp vegg, með því að nota sérstakan sogbúnað í dekkjum sínum og hreyfla til að halda honum á veggnum, þar til hann var kominn á hvolf og féll hann þá til jarðar. Á leiðinni notaði hann eins konar þotuhreyfla, sem þekkjast á geimflaugum, til að rétta sig af og lenda á dekkjunum. Bíllinn notar tíu sérstaka stúta sem dæla lofti úr háþrýstitönkum í bílnum til að svífa og rétta sig af. Roadster var einnig sýndur stökkva yfir aðra bíla Tesla. Enginn ökumaður var í bílnum og sagði Musk það vera „til að tryggja að við drepum engan“. Allan viðburðinn má finna hér. Verður bíll sem virkar Í grein Wall Street Journal segir að nokkrar lykilupplýsingar hafi vantað á kynningunni. Áhorfendur kölluðu til að mynda á Musk og spurðu hvað Roadster myndi kosta og hann svaraði ekki. Fyrir áratug átti bíllinn að kosta tvö hundruð þúsund dali. Þá var Musk einnig spurður hvernig bíllinn gæti verið löglegur á götum Bandaríkjanna. „Já, það fer eftir götunni, en þetta verður bíll sem virkar.“ Musk sagði í gær að bíllinn yrði líklega sá eini sem fyrirtækið framleiddi sem yrði ekki sjálfkeyrandi. Á undanförnum árum hefur meiri áhersla verið lögð á framleiðslu vélmenna og sjálfkeyrandi bíla hjá Tesla. Fyrirtækið hætti á þessu ári að selja Model X og Model S og var verksmiðjum sem framleiddu hann breytt til að framleiða vélmennið Optimus. Þá hóf fyrirtækið einnig að selja tveggja sæta sjálfkeyrandi leigubíl sem kallast CyberCab. Ekki er búist við því að Tesla muni selja mikið af þessum bílum og að hann muni hafa mikil áhrif á reksturinn. Reuters hefur eftir einum greinanda að þrátt fyrir það hafi bíllinn táknræna merkingu. Hingað til hafi Tesla ekki framleitt háklassabíla sem hafi getað staðið sem sýnidæmi fyrir getu og kunnáttu starfsmanna fyrirtækisins og hvernig tækni þess virkar.
Elon Musk SpaceX Tesla Bílar Tækni Mest lesið Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Samstarf Malasar í samstarf við GreenFish Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Atvinnulíf Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira