Tillaga um að fækka varaforsetum felld Eiður Þór Árnason og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 15. október 2026 17:39 Tillagan skipti þingi ASÍ upp í fylkingar og var farið fram á leynilega atkvæðagreiðslu. Vísir/anton brink Tillaga um að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur í einn var felld á þingi sambandsins nú síðdegis. Alls féllu 60 prósent atkvæða með tillögunni en tvo þriðju atkvæða þurfti til að ná lagabreytingunni í gegn sem jafngildir 66 prósentum.
Af 290 atkvæðum féllu 174 með tillögunni og 111 gegn henni. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, studdi breytinguna og segir erfitt að sjá að þetta ferli hafi verið sameinandi fyrir hreyfinguna. „Núna þurfum við bara að einbeita okkur að þessum málefnum en auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi. Ég held að allir sem halda að hér sé einhvern veginn hægt að sameina fólk með einhverjum hætti undir þessum aðstæðum. Ég er ekki alveg viss um það. En við erum hins vegar hérna með næstum því 300 manns og gríðarlega mikil og öflug málefnavinna sem hefur átt sér stað í dag.“ Halla og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, bjóða sig báðar fram til varaforseta ASÍ á morgun. Sólveig hafði gefið út að Efling myndi endurskoða stöðu sína innan ASÍ ef varaforsetum yrði fækkað. Um er að ræða tillögu sem miðstjórn lagði fram á þingi ASÍ þrátt fyrir að vera ósammála um innihald hennar. Tillagan var felld í laganefnd með 25 atkvæðum á móti 23 en var í kjölfarið lögð fyrir þingið. Farið var fram á að leynileg atkvæðagreiðsla færi fram um tillöguna í stað hefðbundinna handauppréttinga og var fallist á það. Tafði þetta birtingu niðurstöðunnar. Sagan blóði drifin Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, talaði um það áður en niðurstöðurnar voru kynntar að hann teldi mikilvægt að þingið kæmi út sem ein heild af þinginu og að ekki yrði ráðist í þessa breytingu að þessu sinni. Finnst þér þessi tillaga um að fækka varaforsetum ekki til þess gerð að lægja öldurnar? „Nei, alls ekki,“ segir Vilhjálmur. Þegar Efling, eitt stærsta verkalýðsfélag landsins með sína 56 fulltrúa á þingi ASÍ, sé ósátt þá sé eðlilegt að „hlusta og reyna frekar að leysa þetta innbyrðis og skoða hvort við getum fundið lausn á málunum.“ „Ef menn lesa sögu Alþýðusambandsins þessi 110 ár þá er hún blóði drifin ef þannig má að orði komast. Það eru átök í verkalýðshreyfingunni, ég ætla ekki að segja á hverju ári en oft á tíðum, og við þurfum að hafa þroska til þess að vinna okkur út úr þeim vandamálum því að hagsmunirnir eru miklu, miklu meiri og með samstöðunni náum við betri árangri.“ Eftirfarandi viðtöl voru tekin áður en niðurstöðurnar voru kynntar: Fréttin er í vinnslu.
ASÍ Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Tillaga um að fækka varaforsetum felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Sjá meira