Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Kjartan Kjartansson skrifar 12. október 2026 10:01 Fulltrúar Nóbelsnefndarinnar og sænska seðlabankans kynna verðlaunahafana í hagfræði árið 2026, þá Robert E. Hall og Michael Woodford frá Bandaríkjunum. Vísir/EPA Tveir bandarískir hagfræðingar hlutu hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar fyrir að framlag þeirra til bættra hagstjórnartækja samtímans. Þeir lögðu rekstrarhagfræði til grundvallar þjóðarhagfræðilegra líkana sem eru sögð hafa hjálpað til við peninga- og fjármálastefnu og dregið úr sveiflum.
Robert E. Hall frá Stanford-háskóla og Michael Woodford frá Columbia-háskóla hljóta hagfræðiverðlaunin sem eru til minningar um Alfreð Nóbel í morgun. Ólíkt sjálfum Nóbelsverðlaununum sem sænska vísindaakademían útdeilir er það sænski seðlabankinn sem velur verðlaunahafanna í hagfræði. Nýjungin sem þeir Hall og Woodford eru sagðir hafa bryddað upp á var að byggja hagfræðilíkön sín ekki aðeins á tölfræðilegri fylni á milli þjóðhagslegra þátta eins og verðbólgu, framleiðni og neyslu heldur á áhrifum heimila og fyrirtækja á hagkerfið. „Frá því að nýju líkönin komu til sögunnar hafa þau reynst afar gagnleg í að glíma við efnahagslegar niðursveiflur sem við höfum lent í,“ segir í rökstuðningi sænska seðlabankans. Gömlu hagstjórnartækin sem byggðust á kenningum John Maynard Keynes, enska hagfræðingsins, gengu út á að menn lækkuðu stýrivexti og ykju ríkisútgjöld í kreppum en það gagnstæða þegar hagkerfið ofhitnaði. Þær aðferðir hafi hins vegar litlum árangri skilað í olíukreppunum á áttunda ártug síðustu aldar. Í stað þess að draga úr atvinnuleysi leiddu þær til óðaverðbólgu. Árin einkenndust af viðvarandi atvinnuleysi, verðbólgu og litlum hagvexti á vesturlöndum. „Rannsóknir verðlaunahafanna veittu okkur stöðugan fræðilegan grunn fyrir þau líkön sem seðlabankar og ríkisstjórnir um allan heim nota núna. Við erum betur í stakk búin að takast á við efnahagsáföll með þeim, þar á meðal orkukreppur eða skyndilegar breytingar í neyslu heimila,“ segir John Hassler, formaður hagfræðiverðlaunanefndarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Nóbelsverðlaun Noregur Svíþjóð Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Fleiri fréttir Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Sjá meira