Handbolti

Flautumark í sigri Viggós á Reyni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Viggó fór glaðari heim í dag.
Viggó fór glaðari heim í dag. Getty

Erlangen vann dramatískan 33-32 heimasigur á Melsungen í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Þýska skyttan Marek Nissen var hetja Erlangen eftir jafnan og spennandi leik dagsins. Hann skoraði sigurmarkið í þann mund sem lokaflautið gall og tryggði nauman sigur.

Viggó Kristjánsson var í liði Erlangen og skoraði þrjú mörk úr sex skotum auk þess að leggja eitt upp. Reynir Þór Stefánsson skoraði fjögur úr sex skotum og lagði upp tvö.

Með sigri dagsins jafnar Erlangen andstæðing dagsins að stigum. Bæði eru með níu stig rétt eins og Stuttgart og Burgdorf í 5.-8. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×