Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Valur Páll Eiríksson skrifar 8. október 2026 11:02 Sjeik Salman Bin Ebrahim Al Khalifa, einn varaforseta FIFA og forseti AFC, hefur mildað afstöðu sína gagnvart Gianni Infantino, forseta FIFA. Getty Forseti Knattspyrnusambands Asíu, sem jafnframt er einn varaforseta FIFA, virðist hafa mildað afstöðu sína til Giannis Infantino og umbóta hjá FIFA í bréfi til forseta alþjóðaknattspyrnusambandsins, sem sætir nú harðri gagnrýni.
Sjeik Salman bin Ibrahim Al Khalifa, sem er frá Barein, hefur áður gagnrýnt Infantino harðlega og verið þeirrar skoðunar að hann ætti að láta af embætti í kjölfar misheppnaðrar FFE-áætlunar Svisslendingsins. Í bréfi sem sent var Infantino á þriðjudag og deilt með öðrum forsetum álfusambandanna, þar á meðal Aleksander Ceferin og Victor Montagliani, virðist Salman þó hafa snúið við blaðinu þegar hann leggur til að þeir „íhugi á uppbyggilegan hátt hvort styrkja megi núverandi stjórnarhætti FIFA“. Infantino hefur reynt að lægja öldurnar eftir misheppnaða tilraun sína til að einkavæða hluta FIFA og selja til einkafjárfesta undir hatti FFE. Hann kveðst opnari fyrir breytingu á stjórnarháttum sambandsins og hefur þá einnig sagst opinn fyrir því að opna geigvænlega varasjóði FIFA og skila þaðan fé til aðildarsambanda. Háttsettir stjórnendur FIFA virðast margir hafa mildast í afstöðu sinni eftir harðorða gagnrýni víða í sumar. Al Khalifa bætist í þann hóp og í bréfinu fjarlægir hann sig frá hugsanlegri „heildarendurskoðun á stjórnkerfi FIFA“ og leggur þess í stað til að vinnuhópur kanni núverandi stjórnareiningar, í stað þess að ferlinu verði útvistað til utanaðkomandi aðila – þrátt fyrir að hafa áður verið meðal þeirra sem undirrituðu bréf, ásamt UEFA og Concacaf, þar sem fram kom að hvers kyns endurskoðun ætti að vera í höndum „fullkomlega óháðs þriðja aðila“. „Innan álfusambandanna og FIFA sjálfs býr umtalsverð reynsla og sérþekking sem máli skiptir, og ég tel því að ferlinu eigi að stýra af knattspyrnustofnununum sjálfum, frekar en að því verði útvistað til utanaðkomandi aðila.“ Tillaga Salmans kemur rúmri viku fyrir fund stjórnar FIFA, FIFA Council, í Zürich 15. október, þann fyrsta síðan FFE-áætlanir Infantinos – sem hefðu falið í sér að 20 prósenta hlutur í viðskipta- og viðburðastarfsemi FIFA yrði boðinn einkafjárfestum – komust upp á yfirborðið og beindu kastljósi heimsins að honum. Fjölmargir hagsmunaaðilar, þar á meðal UEFA, hafa í kjölfarið hvatt Infantino eindregið til að segja af sér í hörðum viðbrögðum víða um heim, en innan Asíusambands Salmans hafa skoðanir verið skiptari. Knattspyrnusamband Marokkó var eitt þeirra fyrstu til að lýsa yfir stuðningi við forseta FIFA, en knattspyrnusamband Jórdaníu lýsti hins vegar „alvarlegum áhyggjum“ og sakaði alþjóðaknattspyrnusambandið um að reyna að „kúga“ sambandið til að styðja framboð Infantinos til endurkjörs. Norska knattspyrnusambandið lagði fram tvö mismunandi erindi til FIFA á mánudaginn, þann 5. október síðastliðinn, sem vörðuðu þrjú mál; friðarverðlaun FIFA, afléttingu leikbanns Folarin Balogun auk verkefnisins FFE. Svisslendingurinn Ramon Vega varð í gær fyrstur til að bjóða sig fram gegn Infantino á komandi þingi FIFA en kosið verður um forseta sambandsins á komandi ársþingi í mars.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Aron Þórður hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Sjá meira