Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Sindri Sverrisson skrifar 7. október 2026 10:00 Strákarnir okkar gátu fagnað vel í Þórshöfn í gær. Sýn Sport Ungu strákarnir okkar í U21-landsliðinu í fótbolta skoruðu tvö frábær mörk í Færeyjum í gær og tryggðu sig inn í umspilið um sæti í lokakeppni EM. Nú er ljóst hvaða lið gæti beðið Íslands í umspilinu.
Ísland vann 2-0 og sigurinn dugði Íslandi til að ná 2. sæti síns riðils á kostnað Sviss sem steinlá gegn Frakklandi á sama tíma, 7-1. Mörkin úr sigri Íslands og fögnuð íslensku strákanna í Þórshöfn má sjá hér að neðan. Benoný Breki Andrésson skoraði fyrra markið með skalla eftir stórkostlegan undirbúning Amin Cosic og seinna markið skoraði svo Daníel Tristan Guðjohnsen eftir aðra sókn fram vinstra megin og sendingu Daníels Freys Kristjánssonar. Klippa: Mörk Íslands og fögnuðurinn í Færeyjum Daníel Tristan skoraði því í öllum þremur leikjum U21-liðsins í þessum leikjaglugga, samtals fjögur mörk, gegn Færeyju, Sviss og Frakklandi. Hann endaði með sjö mörk í undankeppninni. Tveggja leikja einvígi í nóvember Dregið verður í EM-umspilið á föstudagsmorgun en umspilið sjálft fer svo fram um miðjan næsta mánuð. Evrópumeistaramótið er svo í Albaníu og Serbíu næsta sumar. Liðunum átta í umspilinu verður ekki raðað í styrkleikaflokka svo Ísland gæti mætt hverju sem er af hinum liðunum sjö. Þau eru: Tékkland, Danmörk, Finnland, Grikkland, Holland, Írland og Tyrkland. Í umspilinu verður liðunum skipt í fjögur tveggja leikja einvígi og sigurvegari hvers einvígis kemst á EM. Tvisvar áður komist á mótið Liðin tólf sem eru komin með sæti á EM eru gestgjafarnir Albanía og Serbía, Belgía, Króatía, England, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Noregur, Pólland, Portúgal og Spánn. Íslenska U21-landsliðið hefur tvisvar sinnum komist í lokakeppni EM. Fyrst var það gullkynslóðin sem komst á EM 2011 og átti síðar eftir að koma A-landsliðinu á EM 2016 og HM 2018, og svo aftur árið 2021.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Aron Þórður hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Sjá meira