Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. október 2026 21:26 Arnar Gunnlaugsson var ánægður með stigið. Alex Nicodim/NurPhoto via Getty Images „Mér fannst þetta frábært stig á erfiðum útivelli,“ sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson eftir markalaust jafntefli Íslands gegn Eistlandi í kvöld. „
Ég var að fíla Eistana. Þeir voru gamaldags og direct. Þeir voru að spinna okkur út og suður, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þeir eru líka bara þokkalega vel spilandi þannig að við vorum bara í stökustu vandræðum í fyrri hálfleik,“ bætti Arnar við. „Vi vorum aðeins off í pressunni og of bráðir að stíga upp. Það var lítil tenging á milli leikmanna og þeir nápu hvað eftir annað að spinna okkur og finna auða manninn á milli línanna hjá okkur. En seinni hálfleikur var betri. Við vorum með betri stjórn og þeir voru farnir að þreytast verulega, en við náum samt ekki alveg að fá nein færi. Þeir voru þéttir varnarlega og voru að henda sér fyrir hvað sem er og voru síðan alltaf skeinuhættir á breikinu. Maður er búinn að vera lengi í þessum bransa þannig að ég ætla bara að taka þann pól í hæðinni að virða þetta stig og hreinlega fagna því bara.“ Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður liðsins, talaði um það í sínu viðtali eftir leik að Arnar hafi látið leikmenn heyra það í hálfleik. Arnar segir hafa verið þörf á því miðað við það sem hann sá í fyrri hálfleik. „Já, mér fannst það. Ég held að allir hafi nú séð það þó að stundum vilji maður ekki gera það. Þetta var bara svona móment einhvernveginn til að láta ekki augnablikið fara framhjá okkur og þeir myndu skora fyrsta markið og jafnvel vinna okkur. Allt í einu væri þá bara fínasti gluggi búinn að breytast í ekki nógu góðan glugga. Það er svo stutt á milli í þessu,“ sagði Arnar. „Menn voru þreyttir og stundum þarf bara að vekja menn aðeins upp. Mér fannst seinni hálfleikur vera sterkari og við höfðum mun meiri stjórn. Hann var alls ekki fullkominn og við vorum stundum ekki alveg að bera virðingu fyrir aðstæðum. Við vorum að láta boltann ganga ágætlega en svo kemur úrslitasendingin, erfið sending milli lína og þeir átu okkur. Þannig fengu þeir súrefni við eiginlega mistök okkar. En ég ætla ekki að dvelja of mikið við frammistöðuna. Ég ætla að líta á heildarmyndina. Við héldum hreinu þriðja leikinn í röð, við erum með tveggja tstiga forskot á toppnum og sem betur fer erum við búnir með Eistana. Ég sagði við þjálfarann þeirra eftir leik: „Ég fíla ykkur.“ Ég fíla þetta lið.“ Klippa: Arnar fagnar stiginu Eins og Arnar minntist á er Ísland með tveggja stiga forskot á toppi riðilsins eftir þennan fjögurra leikja landsliðsglugga, en er hann sáttur með uppskeruna? „Ég hefði nú verið sáttari við tíu stig. En miðað við það hvernig þessi riðill er búinn að þróast. Það er búið að koma mér á óvart hvað Lúxemborg er með fá stig og þeir virðast bara hafa gefist upp. Ég ætla að vona að þeir rífi sig upp af rassgatinu því ég held að þeir eigi heimaleik á móti Eistum í næstu umferð. Þetta er enn alveg galopið, en það er þægilegt að fara í nóvembergluggann með þetta í okkar höndum,“ sagði Arnar. „Við eigum útileik á móti Lúxemborg og heimaleik á móti Búlgörum þar sem við getum klárað þetta. Vonum við klárum við þetta fyrr, en þetta er búinn að vera áhugaverður riðill. Ef þú hefðir sagt mér fyrir þessa leiki að við myndum ekki vinna Eista en að við myndum vinna Búlgara og Lúxemborg hefði ég spurt þig hvort þú værir alveg viss. En svona hefur þetta þróast og mér sýnist eins og Eistarnir séu bara langbesta annað liðið í þessum riðli,“ sagði Arnar að lokum.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira