Íslenski boltinn

Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“

Sindri Sverrisson skrifar
Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá Víkingum eftir fallið niður í Lengjudeildina.
Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá Víkingum eftir fallið niður í Lengjudeildina. Sýn Sport

Katrín Ásbjörnsdóttir segir reginmun hafa verið á Víkingi og Val, liðunum sem féllu, og liðum Fram og Þórs/KA sem héldu sér uppi í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Fallbaráttan var gerð upp í Bestu mörkunum á Sýn Sport Ísland á sunnudag en það kom í hlut Vals og Víkings að falla niður í Lengjudeildina.

Klippa: Bestu mörkin - Fall Víkinga

Víkingar gátu með sigri á heimavelli gegn Þór/KA haldið sér uppi en Akureyringar unnu þann leik.

„Það er ótrúlega sorglegt að félag með þessa umgjörð sé að falla úr Bestu deildinni. Þetta er að mínu mati langflottasta félagið í þessari deild og það er alveg hræðilegt fyrir deildina og auðvitað okkur að við séum fallin,“ sagði Einar Guðnason þjálfari Víkings.

„Það er líka hræðilegt að Valur sé fallinn því Valur var að spila á ungum leikmönnum. Þetta eru þau tvö lið sem eru með fæstar mínútur hjá erlendum leikmönnum en við getum sjálfum okkur um kennt að taka ekki þátt í leiknum og taka inn fimm útlendinga frá upphafi til að vera með í þessu. Það varð okkur kannski að falli líka. Það er sorglegt fyrir íslenskan fótbolta að þessi tvö lið séu að fara niður,“ sagði Einar.

Góðar í að halda boltanum en hvað svo?

Katrín sagðist einfaldlega ekki hafa séð eins skýrt plan í leik Víkings og hjá Fram eða Þór/KA.

„Þær reyndu og reyndu en það bara var ekki að virka. Mér fannst sóknarleikurinn bara dapur hjá þeim,“ sagði Katrín um leik Víkings í lokaumferðinni.

„Maður sér á Þór/KA og Fram eitthvað í spilinu þeirra. Maður sér hvert planið er. Þær halda í sín gildi, vita hvað þær geta og kunna og eru ekkert að fara út fyrir það. Það er það sem er svo áberandi. Svo horfir maður á leikina hjá Víkingi og Val… Hvar eru þær? Hvað er planið? Hver eru gildin og í hverju eru þær góðar? Jú, þær eru góðar í að halda boltanum en hvað svo? Það þarf að skora mörk. Það er eins og vanti gildin þar og í því þurfa þær að vinna í vetur,“ sagði Katrín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×