Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Aron Guðmundsson skrifar 6. október 2026 11:32 Mynd úr fyrri leik Íslands og Eistlands og svo mynd frá Íslandstorgi í Tallinn Vísir Eistland og Ísland mætast í mikilvægum leik í Þjóðadeild Evrópu í Tallinn í kvöld. Saga þjóðanna tveggja á sér rík tengsl og út frá stöðu alþjóðamála í dag er hægt að líta aftur í tímann og sjá hvaða áhrif smáríki gat haft í hinu stóra samhengi. Tvær þjóðir sem meta fullveldi og sjálfstæði mikils, ógnin úr austri vofir yfir Eistum.
Aron Guðmundsson skrifar frá Tallinn Ísland er mikils metið hér í Eistlandi og það af góðum og gildum ástæðum. Árið 1991 tók Ísland, undir forystu þáverandi utanríkisráðherra landsins Jóns Baldvins Hannibalssonar, það stóra skref að viðurkenna endurheimt sjálfstæðis Eistlands frá Sovétríkjunum sem og sjálfstæði Lettlands og Litáen. „Árið 1991 gegndi Ísland stærra hlutverki en ísbrjótur í því að breyta heiminum. Íslendingar minntu allan heiminn á gildi sem höfðu glatast,“ sagði forseti Eistlands frá árinu 1992-2001 í ríkisheimsókn sinni til Íslands árið 1999. Orð sem rituð eru á platta við Íslandstorg í Tallinn. Platti á Íslandstorgi með ummælum fyrrverandi forseta Eistlands, Lennart MeriVísir/Aron Á torginu má sjá ummæli höfð eftir forystufólki ríkjanna tveggja þá og nú. Íslenskar gróðurtegundir má finna á torginu og er staðsetning torgsins um margt merkileg, beint fyrir framan utanríkisráðuneyti Eistlands. Þótt ég sé íþróttafréttamaður er áhugavert og í raun og veru alveg meinhollt að hugsa um stærra samhengi hlutanna, sambönd tiltekinna ríkja, til að mynda þegar fram undan eru kappleikir þeirra á milli, hvort sem þú viljir tengja þá við leikinn sjálfan sem fram undan er eða bara alls ekki. Nýleg dæmi, til að mynda frá leikjum lærisveina Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu við Ísrael hafa sýnt að stundum virðist ógerlegt að skilja að pólitík og stöðu alþjóðamála frá íþróttaviðburðum. Torgið stendur við utanríkisráðuneyti EistlandsVísir/Aron Staða alþjóðamála í dag þykir uggvænleg. Mikið hefur verið rætt og ritað um fullveldi þjóðar og sjálfstæði heima á Íslandi og það er ekki síður til umræðu hér í Eistlandi. Ógnin úr austri er enn til staðar. Hér ríkja áhyggjur af stöðu mála. Fréttir bárust af því bara í gær að Eistar væru farnir að færa aukinn hluta af herliði sínu að landamærunum við Rússland í austri. Sjálfstæðinu sem barist var fyrir stafar ógn af árásargirni Rússa sem hafa sýnt það áður að landamæri annarra ríkja eru þeim lítils virði. Frétt hjá the Financial Times í gær þar sem fjallað er um að Eistar færi herlið sitt nú nær landamærum Eistlands við Rússland.Skjáskot Á sama tíma hefur þeirri spurningu oft og tíðum verið velt upp hvaða áhrif smáríki geti haft á gang mála í alþjóðasamfélaginu, hefur rödd þeirra einhvern styrk til þess að breyta gangi mála? Eistar telja svo vera og fundu ljóslifandi fyrir því árið 1991.„Það koma stundir þegar hugrekki smárra ríkja knýr dyra á samvisku hinna stærri og opnar dyr sem lengi hefur verið beðið eftir að opnist. Ísland hjálpaði Eistlandi og eistnesku þjóðinni að endurheimta ríki sitt,“ sagði Toomas Hendrik Ilves, forseti Eistlands árin 2006-2016. Orð sem einnig eru rituð á platta við Íslandstorg. Í umræðu um vægi og möguleg áhrif smáríkja er vert að hafa þetta í huga.Vísir/Aron Ljóst er að vináttubönd Íslands og Eistlands verða seint slitin og gagnkvæm virðing ríkir utan vallar en ekki síður innan vallar. Þessar tvær vinaþjóðir hafa báðar byrjað vel í Þjóðadeildinni og er leikur kvöldsins barátta um toppsæti riðilsins. Sigur yrði gífurlega mikilvægur fyrir bæði lið.Forseti Eistlands verður heiðursgestur á leik kvöldsins. Kannski til marks um þá virðingu sem ríkir en vináttuböndin verða lögð til hliðar í rúmar níutíu mínútur í kvöld.Leikur Eistlands og Íslands hefst klukkan korter í sjö í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport.
Utan vallar Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Eistland Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Sjá meira