Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Aron Guðmundsson skrifar 6. október 2026 12:17 Frá fyrri leik Íslands og Eistlands í Þjóðadeildinni heima á Laugardalsvelli. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Bæði lið eru taplaus fyrir leik kvöldsins. vísir/Anton Leikur Eistlands og Íslands í Þjóðadeild UEFA mun klárast rétt fyrir miðnætti hér í Tallinn. Landsliðsþjálfari Íslands segir að um skrýtnasta leiktímann sé að ræða. Reynslumiklir landsliðsmenn Íslands muni hins vegar ekki eiga í erfiðleikum með þetta.
Leikur Eistlands og Íslands hefst klukkan korter í sjö á íslenskum tíma en þriggja klukkustunda munur er á klukkunni á Íslandi og Eistlandi. Leikur landsliða þjóðanna í kvöld verður því flautaður á klukkan korter í tíu á staðartíma í kvöld og lýkur því rétt fyrir miðnætti. Yfir sex þúsund manns mættu á A le Coq-leikvanginn í Tallinn, sem tekur um 15 þúsund manns í sæti, þegar Eistar tóku á móti Lúxemborg á dögunum en búist er við færri áhorfendum á leik kvöldsins sökum leiktímans. „Þetta eru skrýtnustu leiktímarnir,“ segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari Íslands í samtali við Sýn Sport. „Korter í tíu á kvöldin. Menn eru kannski ekki alveg með fulla stjórn á því hvað þeir eru að gera yfir daginn, hvenær þeir eigi að hvíla sig.“ Klippa: Arnar fyrir leikinn gegn Eistlandi Þetta eigi hins vegar ekki að vera mikið mál fyrir íslenska liðið og líklegast best að þeir hafi ekki aðlagað sig að fullu eistnesku klukkunni. „Við erum sem betur fer með nokkuð reynslumikla sem hafa spilað svona leiki áður. Þetta er aðallega biðin, að vera nagandi á sér neglurnar heillengi og bíða eftir stundinni. Þetta er bara hluti af þessu. Þú þarft að takast á við krefjandi og mismunandi aðstæður til þess að verða toppleikmaður. Þetta er bara einn af þeim hlutum sem þú þarft að takast á við.“ Viðtalið við Arnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Leikur Eistlands og Íslands hefst sem áður segir klukkan korter í sjö á íslenskum tíma og verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira