Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Sindri Sverrisson skrifar 4. október 2026 23:15 Cristiano Ronaldo er velkominn aftur í landsliðið segir Jorge Jesus. Samsett/Getty Jorge Jesus landsliðsþjálfari Portúgals vonast til þess að Cristiano Ronaldo snúi aftur í landsliðið og ljúki landsliðsferlinum með viðeigandi hætti. Hann ætlar þó ekki að biðja Ronaldo afsökunar og kveðst ekki sjá neina ástæðu til þess.
Ronaldo fór í fússi frá Kaupmannahöfn í síðustu viku, daginn fyrir leik við Danmörku, ósáttur eftir fyrstu tvo leiki Portúgals undir stjórn Jesus. Þjálfarinn tók við liðinu eftir HM í sumar, eftir að hafa verið þjálfari Ronaldo í eitt ár hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu. Það sem virðist hafa angrað Ronaldo meira en nokkuð annað er að hafa ekki fengið að spila eina einustu mínútu í 2-1 sigri Portúgals gegn Noregi fyrir viku en samt verið sendur að hita upp í seinni hálfleiknum. Jesus fór yfir stöðuna eftir annan 2-1 sigur á Noregi í kvöld sem tryggði Portúgal sæti í 8-liða úrslitum Þjóðadeildarinnar. „Biðjast afsökunar á hverju?“ „Eitt af því sem ég sagði við Cris [fyrir þessa landsleikjatörn] var að landsliðsferlinum hans gæti ekki lokið á heimsmeistaramóti með tapi og gráti. Hann yrði að ljúka þeim ferli með því að spila. Þess vegna spilaði hann í fyrsta leiknum á Estádio de Alvalade og hann átti að spila hér í dag. En vegna þess sem gerðist varð allt öðruvísi. Ég er landsliðsþjálfari, ég vel þá sem ég vil. Ég spyr engan hvern hann vill, ég spyr engan hver á að spila. Það eru ýmsir þættir og ýmsar grundvallarreglur sem eru ófrávíkjanlegar. Svo ég get varla verið skýrari en þetta,“ sagði Jesus á blaðamannafundi í kvöld. Aðspurður hvort hann ætlaði að biðja Ronaldo afsökunar svaraði Jesus: „Ég bið engan afsökunar. Vandamálið sem olli þessu öllu var að leikmaðurinn var að hita upp. Ég tek ábyrgð á ákvörðuninni og því sem gerðist. En að biðjast afsökunar á hverju? Hvern? Það gengur ekki. Afsökunar á hverju? Hvað var tilefnið til að biðjast afsökunar?“ ❤️🇵🇹 João Cancelo: “Cristiano Ronaldo is our captain and the symbol of our national team”. “He’s the best ever. Everyone knows what he represents for Portugal and what he has given to this country”. “I believe things will certainly end in the best possible way. We all want the situation to be resolved calmly and with the respect Cristiano deserves”.— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) October 4, 2026 Miðað við orð Bruno Fernandes og Joao Cancelo er Ronaldo enn dýrkaður og dáður af leikmönnum portúgalska landsliðsins og allir áhugasamir um að hann fái að ljúka landsliðsferlinum með viðeigandi hætti. Ronaldo hefur skorað 146 mörk í 234 landsleikjum og er hvoru tveggja met. „Fyrir mér er það ekki spurning“ „Ég deildi líka í heilt ár öllu því sem táknar og einkennir leikmanninn Cristiano, sérstaklega fyrir börnin. Hann er fyrirmynd um allan heim. Þess vegna hef ég sagt að það væri aðeins ef Cris vildi það ekki sem hann kæmi ekki aftur í landsliðið. Fyrir mér er það ekki spurning,“ sagði Jesus og bætti við: „Málið sem kom upp á milli okkar var vanhugsað. Það voru margir sem blönduðu sér í málið og létu það líta út fyrir að vera vandamál sem það var alls ekki. Þegar þjálfari lætur leikmann, og hann er öðruvísi með sína stöðu, hita upp en setur hann svo ekki inn á, þá skapast þetta vandamál. Haldið þið að það sé næg ástæða fyrir goðsögn eins og Cris til þess að enda ferilinn svona skyndilega? Ég vil að hann sé með. Hann veit að þetta mun enda, þetta varir ekki að eilífu. En ég myndi vilja að hann lyki ferlinum með landsliðinu eins og hann vill. Það er hann sem mun ákveða. Þannig ræddum við saman. Í fyrsta landsliðshópnum sagði ég við hann: „Ég þarf á þér að halda. Hvort sem þú spilar eða ekki, þá þarf ég á þér að halda.“ Og nú er það sama sagan.“
Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira