Fótbolti

Heimir í­hugar ekki af­sögn og UEFA þurfi að skoða sín mál

Valur Páll Eiríksson skrifar
Heimir sat auka blaðamannafund í gær.
Heimir sat auka blaðamannafund í gær. Stephen McCarthy/Sportsfile via Getty Images

Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska karlandsliðsins í fótbolta, segir UEFA þurfa að skoða sín mál aðspurður um leik við Ísrael í dag.

Írar eiga að mæta Ísraelum öðru sinni í yfirstandandi landsleikjaglugga í kvöld. Um er að ræða heimaleik Írlands að nafninu til en leikurinn fer fram fyrir luktum dyrum í Serbíu þar sem Írar treysta sér ekki til að taka við ísraelska liðinu af öryggisástæðum.

Heimir sat fyrir svörum á skrautlegum blaðamannafundi í gær sem þurfti að slíta snemma sökum spurninga ísraelskra blaðamanna sem þóttu ekki við hæfi.

Írskir blaðamenn fengu að klára sér fund í búningsklefa á vellinum, líkt og sjá má á myndinni að ofan, og spurðu Heimi hvort álagið í yfirstandandi glugga, tengt Ísrael, hefði fengið hann til að íhuga afsögn úr starfi.

Heimir sagði: „Það er ekki í mínum huga núna.“

Írska knattspyrnusambandið sendi beiðni til UEFA fyrr í haust þess efnis að Írland myndi aldrei mæta Ísrael aftur og liðin yrðu aðskilin við drátt í keppnir sambandsins. UEFA svaraði því snarlega neitandi.

Heimir var spurður út í möguleikann á því að Ísrael og Írland mættust aftur í framtíðinni og hvort grípa ætti í taumana.

Hann svaraði: „Það er kannski spurning sem er ekki fyrir mig að svara,“

„En í ljósi þess að nú höfum við möguleika á að líta til baka og sjá allt sem gerðist, þá held ég að UEFA verði að taka það til greina að þetta geti ekki gerst aftur, bara vegna velferðar leikmanna,“ segir Heimir og bætir við:

„En já, þetta vekur athygli á því sem er í gangi. Og ef það breytir einhverju, þá held ég að það sé þess virði. En ég held að það sé ekki fyrir mig að svara þessu. Þetta er góð spurning fyrir UEFA.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×