Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Valur Páll Eiríksson skrifar 4. október 2026 12:02 Heimir sat auka blaðamannafund í gær. Stephen McCarthy/Sportsfile via Getty Images Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska karlandsliðsins í fótbolta, segir UEFA þurfa að skoða sín mál aðspurður um leik við Ísrael í dag.
Írar eiga að mæta Ísraelum öðru sinni í yfirstandandi landsleikjaglugga í kvöld. Um er að ræða heimaleik Írlands að nafninu til en leikurinn fer fram fyrir luktum dyrum í Serbíu þar sem Írar treysta sér ekki til að taka við ísraelska liðinu af öryggisástæðum. Heimir sat fyrir svörum á skrautlegum blaðamannafundi í gær sem þurfti að slíta snemma sökum spurninga ísraelskra blaðamanna sem þóttu ekki við hæfi. Írskir blaðamenn fengu að klára sér fund í búningsklefa á vellinum, líkt og sjá má á myndinni að ofan, og spurðu Heimi hvort álagið í yfirstandandi glugga, tengt Ísrael, hefði fengið hann til að íhuga afsögn úr starfi. Heimir sagði: „Það er ekki í mínum huga núna.“ Írska knattspyrnusambandið sendi beiðni til UEFA fyrr í haust þess efnis að Írland myndi aldrei mæta Ísrael aftur og liðin yrðu aðskilin við drátt í keppnir sambandsins. UEFA svaraði því snarlega neitandi. Heimir var spurður út í möguleikann á því að Ísrael og Írland mættust aftur í framtíðinni og hvort grípa ætti í taumana. Hann svaraði: „Það er kannski spurning sem er ekki fyrir mig að svara,“ „En í ljósi þess að nú höfum við möguleika á að líta til baka og sjá allt sem gerðist, þá held ég að UEFA verði að taka það til greina að þetta geti ekki gerst aftur, bara vegna velferðar leikmanna,“ segir Heimir og bætir við: „En já, þetta vekur athygli á því sem er í gangi. Og ef það breytir einhverju, þá held ég að það sé þess virði. En ég held að það sé ekki fyrir mig að svara þessu. Þetta er góð spurning fyrir UEFA.“
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Þjóðadeild karla í fótbolta Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira