Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar 3. október 2026 16:01 Í íslenskri fiskveiðistjórnun er svigrúm forréttindi þeirra stærstu. Undanþágur stórútgerðarinnar eru kallaðar öryggisventlar eða nauðsynleg aðlögun, en þegar smábátar biðja um svigrúm til að ljúka vertíðinni er ekkert til skiptanna. Kerfið finnur lausnir fyrir þá sem eiga mest en hneppir þá sem eiga minnst í skuldaánauð. Skoðum tvö dæmi sem afhjúpa þessa misskiptingu sveigjanleikans. VS-afli: Svigrúmið sem varð að peningavél Byrjum á að skoða VS-afla og þróun hans undanfarin ár. Heimildin byggir á lögum nr. 129/2001 og var ætlað að draga úr brottkasti með því að heimila skipum að landa allt að 5% af afla hverrar veiðiferðar utan kvóta. Aflinn á að fara á uppboð án þess að útgerðin hagnist. Neyðarúrræði fyrir fisk sem annars færi fyrir borð átti aldrei verða að aukakvóta bakdyramegin. Þróun síðustu missera bendir þó til þess að sumar stórútgerðir hafi snúið neyðarúrræðinu upp í skipulagða og ódýra hráefnisöflun. Útgerð getur þannig bætt allt að 5% við það magn sem rennur í gegnum eigin vinnslu, umfram aflamark og utan ráðgjafar Hafró. Þegar útgerð, vinnsla og kaupandi eru sami aðilinn getur fiskurinn farið á markað og endað aftur hjá fyrirtækinu sem veiddi hann. Sjómennirnir sem gefa 80% vinnu sinnar sitja eftir með skertan aflahlut en stórútgerðin heldur hráefninu og verðmætunum. Þetta er engin smáglufa heldur svigrúm sem kerfið afhendir þeim sem hafa burði til að nýta það. Tölurnar segja sína sögu. Á fiskveiðiárinu 2025/2026 voru 1.661 tonn af trollveiddum þorski skráð sem VS-afli, en aðeins 913 tonn seld á fiskmörkuðum. Árið áður voru tölurnar 1.323 og 830 tonn. Þótt þessi munur sé ekki sönnun þess að reglur hafi verið brotnar þá læðist að manni grunur að stór hluti VS-aflans fari aldrei á markað eins og lög gera ráð fyrir. Þá sýna sömu gögn að eitt fyrirtæki, Samherji, nýtir 58% VS-heimilda í togveiðum. Fyrirtækið eitt og sér ber jafnframt nánast alfarið ábyrgð á þeirri 8% aukningu sem varð á nýtingu heimildarinnar milli fiskveiðiáranna 2024/2025 og 2025/2026. Þessi mikla samþjöppun bendir til þess að vandinn felist ekki í almennri nýtingu heimildarinnar hjá öllum útgerðarflokkum, heldur fyrst og fremst í kerfisbundinni fullnýtingu hennar hjá einstökum stórum og samþættum útgerðum. Þegar eitt fyrirtæki tekur meirihluta slíkra heimilda er ekki boðlegt að stjórnvöld einfaldlega yppi öxlum. 5,3% kerfið: svigrúmið sem gufaði upp Skoðum næst hvað gerist þegar smábátar biðja um svigrúm til að ljúka strandveiðivertíð: þá er ómögulegt að hnika til tonni eða degi. Sveigjanleikinn hverfur um leið og þeir sem biðja um hann eru ekki nógu stórir og frekir. Forsagan er sú að stjórnvöld höfðu um árabil getað bætt aflaheimildum við 5,3% kerfið þegar fyrirséð var að þær dygðu ekki út vertíðina. Þessi heimild var hins vegar tekin af okkur í kjölfar stjórnsýslukæru sem Ísfélagið beindi til umboðsmanns Alþingis fyrir rúmu ári. Félagið hélt því fram að allar viðbætur við 5,3% kerfið, án samsvarandi viðbótar í almenna aflamarkskerfið, brytu gegn jafnræðisreglunni. Samkvæmt þeim rökum ættu 1.000 tonn til strandveiða að kalla á um 19.000 tonna viðbót í stóra kerfið. Þannig varð kæra stórútgerðarinnar til þess að loka einu mögulegu leiðinni til að tryggja 48 daga vertíð. Strax hlaupið til þótt álit umboðsmanns hafi ekki legið fyrir. Hvað lá á? Hefði ekki verið hægt að bíða eftir áliti umboðsmanns þegar hagsmunir 800 útgerða voru í húfi? Þegar stjórnvöld töldu sér ekki lengur heimilt að grípa inn í var flotinn rekinn í land 17. júlí 2025. Í sumar sem leið þurfti hann að taka 2.700 tonna lán úr eigin framtíð til að ná inn í ágúst – töluvert minna en þau 4.600 tonn sem fóru í VS. Úrræðið sem áður gerði stjórnvöldum kleift að lengja vertíðina var tekið af smábátunum og í staðinn fengu þeir yfirdrátt. Allt sökum úrkynjaðrar túlkunar á „jafnræði“. Þegar skaðlaust úrræði verður pólitískt vandamál Það sem gerir þessa ákvörðun stjórnvalda enn furðulegri er að sú framkvæmd sem 5,3% kerfið naut hafði engin neikvæð áhrif á íslenskar fiskveiðar. Hafrannsóknastofnun gerði ekki athugasemdir við hana og hún hafði engin áhrif á MSC-vottun. Engin fiskifræðileg eða markaðsleg nauðsyn kallaði því á að þessari leið væri lokað. Samt var hún tekin af strandveiðiflotanum í kjölfar kæru Ísfélagsins. Stjórnvöld verða að skýra hvers vegna þau afnámu úrræði sem hafði reynst skaðlaust, en láta um leið glufur standa opnar sem stórútgerðin getur hagnast á. Þegar skaðlaust úrræði fyrir smábáta er tekið af en arðbær glufa stórútgerðarinnar látin óáreitt er það ekki hlutleysi. Það er pólitísk afstaða með þeim sterkustu. Höfundur er trillukarl og formaður Landssambands smábátaeigenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar