Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Sindri Sverrisson skrifar 1. október 2026 08:01 Leah Williamson gerði dýrkeypt mistök þegar hún tók boltann upp með höndum í gærkvöld. Samsett/Getty/Skjáskot Ótrúlegt atvik leiddi til þess að Arsenal fékk á sig jöfnunarmark úr vítaspyrnu gegn Paris FC í Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna í gærkvöld. Enska landsliðskonan Leah Williamson, varnarmaður Arsenal, tók boltann upp með höndum.
Arsenla hafði komist í 2-0 í París í gær með mörkum frá Alessia Russo og Georgia Stanway en Clara Matéo minnkaði muninn fyrir heimakonur á 72. mínútu. Það voru svo bara örfáar mínútur eftir þegar Williamson fékk dæmt á sig víti. Markvörður Arsenal, Misa Rodríguez, hafði þá sótt boltann aftur fyrir endamörk og kastað honum inn í markteiginn. Þegar boltinn hafði stöðvast sparkaði Misa boltanum til hliðar á Williamson sem var greinilega staðráðin í að taka sjálf markspyrnuna því hún teygði sig fram og greip boltann með höndum. Dómarinn dæmdi þá umsvifalaust vítaspyrnu. Error 404: penalty... 🫣#UWCL zie je live op @DisneyPlus pic.twitter.com/Fem0pK7Pnp— ESPN NL (@ESPNnl) September 30, 2026 Maeline Mendy skoraði svo úr vítaspyrnunni og tryggði Paris FC dýrmætt stig eftir 5-2 tap gegn Barcelona í fyrsta leik. Arsenal er með fjögur stig eftir afar nauman sigur gegn HB Köge í fyrsta leik, 1-0. Skrópaði á blaðamannafund Það að Arsenal hafi kastað frá sér 2-0 forskoti í seinni hálfleik í gær eykur enn pressuna á hollenska þjálfarann Renée Slegers sem mætti ekki á blaðamannafund eftir leikinn eins og þjálfurum liðanna ber að gera. Gengi Arsenal hefur valdið vonbrigðum í byrjun tímabils en liðið hefur aðeins unnið einn af fyrstu fjórum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og er þar með fimm stig í 7. sæti.
Enski boltinn Arsenal FC Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Tengdar fréttir Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Bayern München vann stórsigur á Benfica í Meistaradeild Evrópu kvenna í fótbolta í kvöld. Fyrsta mark leiksins var lengi að koma en þrátt fyrir það náði Bayern að tryggja 3-0 sigur. 30. september 2026 21:36 Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Sjá meira
Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Bayern München vann stórsigur á Benfica í Meistaradeild Evrópu kvenna í fótbolta í kvöld. Fyrsta mark leiksins var lengi að koma en þrátt fyrir það náði Bayern að tryggja 3-0 sigur. 30. september 2026 21:36