Myndi henda öllum medalíum í ruslið Sindri Sverrisson skrifar 30. september 2026 13:32 Roy Keane segir að medalíur Manchester City á liðunum árum eigi heima í ruslinu. Samsett/Getty Roy Keane segir ekkert að marka leikmenn Manchester City sem segist hafa átt skilið að vinna þá titla sem þeir unnu með félaginu, vegna framgöngu sinnar innan vallar. Sjálfur myndi hann kasta medalíunum í ruslið.
Enska úrvalsdeildin staðfesti í gær að City-menn hefðu verið dæmdir sekir fyrir umfangsmikil brot á fjármálareglum deildarinnar. Niðurstaðan er sú að félagið hafi dulbúið greiðslur frá eigendum sem styrktarsamninga og einnig greitt starfsfólki laun í gegnum þriðja aðila til að lækka rekstrarkostnað. Svindl City-manna hafi þannig fegrað reikninga félagsins á árunum 2009-18 um meira en 900 milljónir punda, eða 144 milljarða króna, sem gaf félaginu gríðarlegt forskot í samkeppni við önnur félög sem bundin voru af reglum um fjárhagslegt aðhald. Við þetta svindl bættust svo brot með því að neita að sýna samstarfsvilja við rannsókn málsins. Micah Richards er einn af þeim leikmönnum sem fögnuðu titlum með City á svindlárunum og segir erfitt að taka tíðindum gærdagsins. Richards niðurbrotinn en enginn fær að taka titilinn „En það er enginn að fara að taka Englandsmeistaratitilinn af mér,“ sagði Richards í The Rest is Football hlaðvarpinu með Gary Lineker og Alan Shearer. „Orðin sem enska úrvalsdeildin notaði, „sýndarsamningar“… ég elska Manchester City og ég er niðurbrotinn. Ég hef verið hjá þessu félagi síðan ég var 14 ára, ég myndi deyja fyrir þetta félag. Ég lét draum minn rætast hjá Man City, en að heyra þessar fréttir, og – ekki bara ég sem fyrrverandi leikmaður heldur stuðningsmennirnir, það sem þeir þurfa að ganga í gegnum – maður er algjörlega niðurbrotinn,“ sagði Richards. Skaðlegt fyrir deildina en nauðsynlegt að refsa Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, sýndi litla samúð þegar hann ræddi málið í ITV Sport. „Þeir vissu að þetta myndi særa marga en gerðu það samt,“ sagði Keane. „Og ef ég væri leikmaður með allan þann árangur sem náðst hefur síðustu ár þá myndi ég hundrað prósent henda þessum verðlaunapeningum í ruslið. Hundrað prósent. Þetta er svindl. Það er það sem ég myndi gera. Maður heyrir bull frá fyrrverandi leikmönnum sem segjast hafa unnið á vellinum. En þetta var svindl. Það var svindlað,“ sagði Keane og hélt áfrma. Roy Keane didn't hold back 😳 pic.twitter.com/8Sh9QYBPjn— ESPN UK (@ESPNUK) September 30, 2026 „Þetta er erfitt fyrir leikmennina, fyrir stjórann. Þeir treystu og trúðu því sem var í gangi hjá fótboltafélaginu og svo eru það eigendur sem eru alveg sáttir við að svindla. Það verður mjög erfitt fyrir þessa leikmenn að halda áfram að spila á sama afburðastigi. Þetta er mjög skaðlegt fyrir deildina, vörumerkið er risastórt um allan heim. En úr því að þeir voru staðnir að svindli þá eiga þeir þessa refsingu skilið. Tilfinningarnar eru blendnar. Þú átt skilið að vera refsað, en það er ekki gott fyrir deildina. Hvað með leikmennina sem hafa verið hluti af vandamálinu, nýja leikmenn, hvað gerist núna? Þeir verða að taka afleiðingunum núna,“ sagði Keane.
Enski boltinn Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjá meira