Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar 29. september 2026 17:30 Fyrir rúmum áratug voru rafbílar sjaldséð fyrirbæri á íslenskum vegum. Umræður um orkuskipti snerust að miklu leyti um hvort tæknin væri tilbúin, hvort drægni bíla væri nægileg og hvort hægt væri að byggja upp hleðsluinnviði sem stæðu undir þörfum almennings. Í dag eru spurningarnar aðrar. Nú er frekar rætt um hvort orkuskiptin séu að ganga nógu hratt og hvort þau séu farin að skila nægum árangri þegar kemur að því að draga úr losun koltvísýrings. Þetta eru vissulega mikilvægar spurningar en fókusinn mætti vera meiri á það sem ætti eiginlega að vera grundvallarspurningin. Spurningin um hvar við værum stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Nýir bílar langflestir rafmagnsbílar Gögn frá Orkustofnun sýna að 24% bílaflota Íslands í júní á þessu ári voru rafmagns- eða tengiltvinnbílar. Fyrir rúmum áratug voru slíkir bílar varla til staðar í íslenskri umferð. Þetta er gríðarlega mikil breyting á ekki lengri tíma og þróunin heldur áfram af miklum krafti. Það sem af er þessu ári hafa 4.866 rafbílar verið nýskráðir hér á landi. Til samanburðar hafa aðeins 652 bensínbílar og 1.095 dísilbílar verið nýskráðir á sama tímabili. Jafnframt hafa 2.450 tvinnbílar og 2.194 tengiltvinnbílar bæst við flotann. Með öðrum orðum eru langflestir nýir bílar sem koma inn í íslenskan bílaflota í dag annað hvort að fullu eða að hluta knúnir raforku. Þetta eru tölur sem segja sögu sem vert er að staldra við. Veruleg lækkun framlaga til Loftslags- og orkusjóðs Nýlega benti Úlfar Linnet forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá Orku náttúrunnar á að notkun hraðhleðslustöðva víða um land hefði aukist um 50% milli ára. Sú þróun bendir til þess að sífellt fleiri Íslendingar treysti rafbílnum sem aðal ferðabíl fjölskyldunnar og noti hann í lengri ferðir um landið. Það er mikil breyting frá því fyrir aðeins nokkrum árum þegar hleðslukvíði var fastur fylgifiskur umræðunnar um rafbíla. Þegar við skoðum allar þessar tölur saman blasir við að íslenski bílaflotinn og viðhorf fólks til hans hafa tekið stakkaskiptum. Þessi þróun varð ekki til af sjálfu sér. Hún byggðist á samspili tækniframfara, uppbyggingar hleðsluinnviða, fjárfestinga fyrirtækja og ákvarðana stjórnvalda sem hafa stutt við orkuskipti í samgöngum á undanförnum árum. Þess vegna vekja nýjar áherslur í ríkisfjármálum athygli. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er meðal annars gert ráð fyrir verulegri lækkun framlaga til Loftslags- og orkusjóðs. Slíkar ákvarðanir eru að sjálfsögðu hluti af stærri forgangsröðun ríkisins en þær minna okkur jafnframt á að orkuskipti eru ekki sjálfgefin. Þau krefjast áframhaldandi vilja, fjárfestinga og skýrrar sýnar til lengri tíma. Þegar nýjar tölur um eldsneytisnotkun eða losun birtast beinist athyglin eðlilega að því sem enn er óunnið. Það er skiljanlegt en áskoranirnar eru enn miklar og þegar kemur að loftslagsbreytingum eru verkefnin framundan fjölmörg. Við erum á betri stað Aftur að spurningunni sem ætti að spyrja oftar; hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Hversu mikið bensín og dísilolía væri notuð á Íslandi í dag ef þessir tugir þúsunda raf- og tengiltvinnbíla væru enn hefðbundnir bensín- og dísilbílar? Hversu mikill væri innflutningur jarðefnaeldsneytis? Hversu mikil væri losunin? Það er kannski erfitt að segja nákvæmlega hver staðan væri ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað en við getum reiknað út að frá upphafi rafvæðingar samgangna höfum við komið í veg fyrir bruna á 180 milljónum lítra af eldsneyti (440.000 tonn af CO2) og bara í ár mun rafbílaflotinn draga úr innflutningi sem nemur um 45 milljónum lítra, sem svarar til 115.000 tonna losun af CO2. Á síðasta áratug hefur íslenskt samfélag byggt upp hleðsluinnviði um allt land, fyrirtæki fjárfest í nýrri tækni og þúsundir heimila tekið þá ákvörðun að skipta yfir í bíla sem ganga að hluta eða öllu leyti fyrir raforku. Þetta eru breytingar sem hefðu þótt ótrúlegar fyrir ekki svo löngu síðan. Það er líka staðreynd að rafbílavæðingin væri ekki komin jafn langt og raun ber vitni ef ekki væri fyrir styrki stjórnvalda. Verkefnið fram undan er ekki lengur að sannfæra fólk um að rafbílar virki. Sú umræða er að mestu að baki. Verkefnið er að halda áfram að skapa skilyrði fyrir hraðari orkuskipti og tryggja að sífellt stærri hluti samgangna landsmanna gangi fyrir innlendri og endurnýjanlegri orku. Það hefur verið og verður áfram sameiginlegt verkefni fyrirtækja og stjórnvalda að halda orkuskiptunum áfram. Verkefninu er ekki lokið en við höldum ótrauð áfram því við trúum því að við séum á betri stað en við værum ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað. Höfundur er deildarstjóri einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá Orku náttúrunnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vistvænir bílar Orkuskipti Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun