Ætlar að dreifa fé í aðdraganda kosninga Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 13:18 Infantino er kominn í kosningaham. Getty/Chris Brunskill Gianni Infantino kveðst vera opinn fyrir því að auka fjárútlát frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA til aðildarsambanda þess. Infantino opinberar þetta þegar stutt er í forsetakosningar.
Infantino sendi bréf á forseta allra sex álfusambanda sem eiga aðild að FIFA auk varaforseta sambandsins og meðlima í stjórn FIFA. FIFA á 6 milljarða dala varasjóði, rúmlega 724 milljarða íslenskra króna. Aðildarsambönd að FIFA hafa undanfarið bent á að svo stórir sjóðir séu ekki nauðsynlegir og dreifa megi hluta af þessum gríðarlegu fjárhæðum til ríkjanna sem mynda alþjóðasambandið. Infantino er í kosningaham eftir að hafa sætt mikilli gagnrýni frá því í sumar er hann hugðist selja hluta eigna FIFA til einkafjárfesta. Hann sagðist í síðustu viku opinn fyrir því að endurskoða stjórnarhætti sambandsins, sem voru teknir í gegn fyrir áratug þegar hann sjálfur tók við eftir að skandall skók sambandið. Nú hyggst hann lofa fjárútlátum til aðildarsambanda sem eiga kosningarétt í forsetakosningum á allsherjarþingi FIFA í mars næstkomandi. Í umræddu bréfi segir Infantino að málið verði tekið fyrir á stjórnarfundi FIFA þann 15. október næstkomandi. „Ég ætla ekki að segja til um upphæðina fyrir fram,“ sagði hann í bréfinu. „Ég mun styðja hæsta mögulega viðbótarfjármagn sem hægt er að veita á ábyrgan hátt í gegnum rétt stjórnarferli FIFA, sem beitt er af sanngirni og stutt af gagnsæju og endurskoðunarhæfu fyrirkomulagi. Metnaðurinn er kærkominn. Fjármagnsgrundvöllurinn, stjórnarhættirnir og framkvæmdin verða nú að styðja við hann,“ segir enn fremur í bréfinu. Fundurinn 15. Október verður fyrsti stjórnarfundur FIFA eftir mislukkaðar áætlanir Infantino um að setja á stokk FIFA Forward Enterprise sem átti að hleypa einkafjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Como - Manchester United | Fámennt United-lið mætt til Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Lille - Galatasaray | Hákon og félagar fá Tyrki í heimsókn Como - Manchester United | Fámennt United-lið mætt til Ítalíu Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Sjá meira