Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar 28. september 2026 09:02 Í upphaf mánaðar kynnti ríkisstjórnin fjárlög fyrir árið 2027. Þar var í raun ekkert sem kom á óvart. Það voru auknar álögur á heimil og ferðamenn þrátt fyrir loforð forsætisráðherra fyrir síðustu alþingiskosningar um að skattar yrðu ekki hækkaðir á „venjulegt fólk”. Hér að ofan er tafla sem er að finna á blaðsíðu 121 í fjárlagafrumvarpinu þar sem er samantekt yfir helstu skattahækkanir í nýjum fjárlögum. Hér sjáum við að ríkisstjórn reiknar með að verðlagsuppfærsla krónutölu gjalda, semsagt 5,2% hækkun sem er spáð verðbólga fyrir árslok 2026 frekar en 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þetta er ákveðið vantraust ríkisstjórnarinn á peningastefnu Seðlabankans sem á að skila 6,5 milljörðum. Með þessu er gefið afar slæmt fordæmi inn í ný opnaðar kjaraviðræður þar sem verðbólguskilyrði þeirra er brostið. Hækkun bankaskatts er skref aftur á bak þar sem íslensk fjármálafyrirtæki er þau skattpíndustu í Evrópu og þurfa að starfa eftir mun þyngri eiginfjárkröfum heldur en þekkist þar. Allir sem hafa grunnþekkingu á hagfræði vita að skattbyrði fyrirtækja er ávallt núll. Fyrirtæki eru einfaldlega innheimtuaðili sem innheimtir skatta af tveimur hópum, viðskiptavinum og eigendum. Þessar auknu álögur mun því leiða til hærri vaxtamunar á milli innlána og útlána. Þetta er því ekkert annað en skattahækkun á „venjulegt fólk”. Hækkun kílómetragjalds um 15,9% og fer það úr 6,95 krónum á kílómetra fyrir bíla 0-3,5 tonn upp í 8,05 krónur. Þegar þetta er skrifað kostar bensín lítrinn hjá orkunni á Eiðistorgi 280 kr. og dísel lítrinn 313 kr. Margt bendir til það verði olíukreppa 2027 og dísel lítrinn geti vel farið yfir 400 kr. Þetta þarf „venjulegt fólk” víst að taka á kassann. Gjaldtaka á ferðaþjónustu og hækkun virðisaukaskatts hjá baðlónum. Áætlað er að gjaldtaka á ferðamannastöðum í eigu ríkisins (Þingvellir, Gullfoss og Geysir t.d.) skili 5 milljörðum. Þó hefur ríkisstjórnin talað um það með óskýrum hætti að Íslendingar verði ekki rukkaðir á þessum stöðum, en það fer gegn EES samning sem bannar mismunum á grundvelli þjóðernis. Kannski verða þá breskir og bandarískir ferðamenn rukkaðir en ekki franskir og þýskir. Þessi skattur mun að öllum líkindum falla á“venjulegt (íslenskt) fólk”. Hin skatthækkunin sem á að falla á ferðamenn er að færra baðlón úr 11% vsk í 24%. Ferðamannaþjónusta hér á landi er almennt í lægra þrepi líkt og í flestum öðrum löndum þar sem ferðamannaþjónusta er stór atvinnugrein, enda á Ísland í samkeppni á alþjóðlegum markaði um ferðaþjónustu og ferðamenn geta verið mjög viðkvæmir fyrir verði. Styrking krónunar undanfarið hefur líka grafið undan samkeppnishæfi innlendrar ferðaþjónustu þar sem það getur stundum verið ódýrara að fara til norður Noregs þar sem má finna svipað landslag og áþekka menningu. Lækkun endurgreiðslu vasks úr 35% í 20% vegna byggingar á íbúðahúsnæði er líka skref aftur á bak þar sem það eykur byggingarkosnað og er hvati til svartrar atvinnustarfsemi. Þegar virðisaukaskattskerfið var tekið upp 1988 höfðu menn áhyggjur að það gæti leitt til aukins byggingarkostnaðar og var því ákveðið að virðisaukaskattur af vinnu á verkstað við nýbyggingar skyldi vera 100% endurgreiddur. Þetta hefur verið megin regla síðan þótt hlutfallið hefur stundum lækkað til að auka tekjur ríkissjóðs tímabundið. Almennt þá er byggingariðnaðurinn frekar kaldur þessa dagana í 8% stýrivaxta umhverfi. Hér er ekki verið að skapa hvata til framkvæmda heldur er verið að drag úr hvata til að auka framboð af íbúðarhúsnæði. Þetta var stutt yfirferð á þeim helstu skattahækkunum sem má finna í þessu fjárlagafrumvarpi. Við erum að tala um 34 milljarða skattahækkun á „venjulegt fólk”. Þessar skattahækkanir eiga víst að duga til að snúa við botnlausum hallarekstri ríkissjóðs og skila afgangi upp á 5 milljarða. Tekjuáætlun ríkisins er því um 1.708 milljarðar og áætluð útgjöld 1.704 milljarðar. Þetta er afgangur upp á 0,2%. Myndir þú kalla það ábyrgt heimilsbókald þar sem ekki má bregða út af meira en 0,2% yfir árið án þess að bætt sé í yfirdráttinn? Ég tel líklegra en ekki að þessi áætlun ríkisstjórnar muni ekki standast og að þegar upp er staðið verði hallinn á næsta ári frekar á bilinu 50-100 milljarðar. Hallalaus fjárlög eru göfugt markmið hjá ríksstjórninni sem ég vona að haldi. En eins og nóbelsverðlauna hagfræðingurinn Milton Friedman sagði: “The problem isn’t deficit spending, the problem is government spending”. Með þessu átti hann við að mikil halli á fjárlögum sé ekki aðal áhyggjuefni heldur eru umsvif fjárlaganna meira áhyggjuefni. Vaxandi umsvif ríkisins leiða til þess að hver viðbótar króna sem ríkið ráðstafar er króna sem hefði verið betur ráðstafað af markaði og myndi auka verðmætasköpun til framtíðar. Hver ríkisstarfsmaður er einstaklingur sem býr yfir hæfileikum sem betur gætu nýst samborgurum hans væri hann starfandi á frjálsum markaði. Mér þykir það því áhyggjuefni að áætluð útgjöld fjárlaga hljóði upp á 30,5% af vergri landsframleiðslu, þar er raunverulegt tækifæri fyri aðahald. Á þessum tímum hárrar verðbólgu og hárra vaxta ætti ríkisstjórnin því að sýna gott fordæmi og draga saman seglin í stað þess að vera leiðandi í verðlagshækkunum. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjárlagafrumvarp 2027 Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar