Formúla 1

Vill að mót­herji hans fari í bann eftir á­rekstur

Andri Broddason skrifar
Lando Norris var ekki sáttur með mótherja sinn í Aserbaísjan.
Lando Norris var ekki sáttur með mótherja sinn í Aserbaísjan. Andrea Diodato/Getty Images

Lando Norris sagði að Franco Colapinto ætti að fara í bann eftir að hann datt úr leik í kappakstrinum í Aserbaísjan í Formúlu 1. Colapinto bremsaði of seint í fyrstu beygju og klessti á Pierre Gasly og Lando Norris.

Á 31. hring í kappakstrinum endaði Alex Albon á að klessa í vegginn og þurfti öryggisbíllinn að fara út. Það átti þó eftir að vera mikil ringulreið þegar kappaksturinn fór aftur af stað og gerði Franco Colapinto stór mistök.

Alpine var með tvo bíla í stigasæti og var Colapinto í síðasta stigasætinu þegar keppnin hófst aftur. Hann bremsaði þó of seint í fyrstu beygju og keyrði utan í liðsfélaga sinn, Pierre Gasly, og ríkjandi heimsmeistara Lando Norris.

Sá síðarnefndi var ekki ánægður með hvað Colapinto gerði og í viðtali við BBC Radio 5 sagði Norris að Colapinto ætti að fara í bann eftir það sem hann gerði. Colapinto viðurkenndi eftir keppnina að hann hefði gert mistök og baðst fyrirgefningar á því sem hann gerði.

George Russell náði að vinna kappaksturinn í Aserbaísjan en hann var rétt á undan Max Verstappen sem endaði í öðru sætinu. Hefði verið einn hringur til viðbótar í keppninni er líklegt að Max Verstappen hefði sótt langþráðan sigur á tímabilinu.

Þeir tveir voru ekki sammála Norris um að Colapinto ætti að fara í bann og sögðu að slík mistök gætu gerst. Þau geti verið leiðinleg og haft miklar afleiðingar en ef ökuþórar eru settir í bann fyrir slík mistök þá yrði íþróttin ekki skemmtileg.

Colapinto endaði á að fá 10 sekúndna refsingu en hann var hættur keppni sem þýðir að hann mun byrja fimm sætum aftar í næstu keppni sem verður haldin í Malasíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×