Málverk af Danakonungi vekur athygli Agnar Már Másson skrifar 26. september 2026 11:33 Málverkið var afhjúpað í gærkvöldi. Getty „Kannski hefði konungurinn átt að velja annan listamann,“ skrifar listagagnrýnandi Politiken um nýafhjúpað portrettmálverk af Friðriki Danakonungi. Skiptar skoðanir eru á verkinu.
Næstum þriggja metra hátt portrettmálverk af Friðriki konungi hefur vakið mikla umræðu meðal Dana á samfélagsmiðlum. Í gærkvöldi var hulunni svipt af verkinu við hátíðarkvöldverð í Riddarasalnum í Friðriksborgarhöll í Hillerød, þar sem málverkið hangir nú við hlið málverka af fyrri konungum og drottningu. Málverkið er eftir Cathrine Raben Davidsen, einn af fremstu samtímalistamönnum Danmerkur. Málverkið af Friðriki konungi er fyrsta opinbera portrettmálverkið af honum sem konungi. Konungsfjölskyldan birti myndskeið af því þegar hulunni var svipt af málverkinu en af kommentakerfinu að dæma virðast Danir missáttir. Telja margir að nefi konungsins hafi ekki verið gerð góð skil. Sumir telja að málverkið líkist frekar Jóakim prins, bróður Friðriks. Cathrine Davidsen listmálari hefur unnið að málverkinu í tvö ár en í samtali við TV2 segir hún að kóngurinn hafi sjálfur málað blómin á málverkinu. Listasagnfræðingurinn Thyge Christian Fønss-Lundberg segir þó við B.T. að um „glæsilegt listaverk“ sé að ræða. „Ég segi gjarnan að vel heppnað portrett eigi að líkjast bæði fyrirsætunni og listamanninum, þannig að auðvitað vill maður geta séð hvern portrettið sýnir, en maður vill líka geta séð hvaða málari hefur gert það,“ segir hann. Gagnrýnadi Politiken gefur málverkinu aftur á móti þrjú hjörtu af sex og hann spyr hvort konungurinn sé yfir höfuð líkur sjálfum sér. View this post on Instagram A post shared by Kongehuset 🇩🇰 (@detdanskekongehus)
Friðrik X Danakonungur Myndlist Danmörk Kóngafólk Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira