Formúla 1

Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir

Andri Broddason skrifar
George Russell var langhraðastur í tímatökum í kappsktrinum í Aserbaísjan í Formúlu 1. Hann hefur því gott forskot á Kimi Antonelli sem þarf að byrja aftarlega.
George Russell var langhraðastur í tímatökum í kappsktrinum í Aserbaísjan í Formúlu 1. Hann hefur því gott forskot á Kimi Antonelli sem þarf að byrja aftarlega. Jakub Porzycki/Getty Images

George Russell byrjar kappaksturinn í Aserbaísjan fremstur eftir að hafa verið langhraðastur í tímatökum í dag. Liðsfélaga hans hjá Mercedes, Kimi Antonelli, gekk ekki jafn vel og keyrði á vegg í fyrsta hluta tímatakanna.

Antonelli, sem er efstur í heimsmeistaramóti ökumanna, var að byrja sinn annan hring þegar hann skemmdi bílinn sinn og náði því á ótrúlegan hátt að tryggja sig í annan hluta tímatakanna. Hann gat þó ekki tekið þátt í öðrum hlutanum og þarf því að byrja kappaksturinn á morgun í sextánda sæti.

George Russell var næstum því sekúndu á undan Charles Leclerc, ökumanni Ferrari, sem var næsthraðastur í tímatökum. Það gerir vonbrigði Antonelli í tímatökunum enn meiri en hann hefur tækifæri til að vinna upp sæti í keppninni á morgun. Góð tækifæri fyrir framúrakstur eru á brautinni í Aserbaísjan og því ætti hann að geta unnið upp góðan tíma.

Oscar Piastri var aðeins einum þúsundasta úr sekúndu fyrir aftan Charles Leclerc og þarf að sætta sig við að byrja þriðji á morgun. Liðsfélagi hans, Lando Norris, byrjar keppnina fimmti.

Williams komst í fyrsta skipti á tímabilinu í lokahluta tímatakanna og mun Carlos Sainz byrja keppnina á morgun í níunda sæti. Liðsfélagi hans, Alex Albon, byrjar keppnina aftar en hann datt út í öðrum hluta tímatakanna og byrjar keppnina þrettándi.

Max Verstappen getur verið svekktur með tímatökuna sína þar sem hann byrjar keppnina á morgun áttundi. Hann rakst aðeins utan í vegg á síðasta hringnum sínum sem eyðilagði tækifærið hans til að bæta fyrri hringinn sinn sem var ekki nógu góður. Liðsfélagi hans hjá Red Bull, Isack Hadjar, er kominn aftur eftir að hafa verið frá vegna meiðsla og byrjar hann keppnina í fjórða sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×