Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar 22. september 2026 09:01 Frá því í október árið 2023 hefur eðli Ísraelsríki afhjúpast æ betur gagnvart íslenskum almenningi og það blasir við að í ríkinu ræður kynþáttaaðskilnaður (apartheid) og að lög landins hygla hluta íbúanna. Flestum er einnig ljóst að Ísrael er ríki nýlendustefnunnar - sífellt er sótt gegn frumbyggjum landsins og jörð þeirra stolið og þeir ýmist hraktir burt eða drepnir. Þeir sem þekkja raunverulega sögu Palestínu og Ísraels falla ekki fyrir áróðri síonista þegar þeir flytja þær rangfærslur og lygar sem allur þeirra málflutningur byggir á. Hér á landi eru á kreiki einstaklingar sem taka afstöðu með Ísrael og öflunum sem stunda þjóðamorð fyrir opnum tjöldum. Til að reyna að greina hvað liggur að baki því að Ísrael nýtur enn stuðnings skipti ég stuðningsfólkinu í nokkra hópa. Fimm meginhópar - Í fyrsta hópnum eru þau sem taka afstöðu út frá eigin fáfræði. Þau þekkja ekki forsöguna og eru því tilbúin að trúa því sem síonistar bera á borð. Það hefur væntanlega fækkað í þessum hópi eftir að eðli síonismans og Ísraelsríkis hefur afhjúpast í óteljandi myndböndum sem sýna grimmdarverk Ísraelshers á samfélagsmiðlum - Í næsta hópi eru þau fordómafullu - og stundum fáfróðu. Í þessum hóp eru rasistarnir, fólkið sem skortir mannúð og samkennd. Hjá mörgum er hræðsla við hið óþekkta grundvallar orsök andúðar á fólki sem tilheyrir „hinum“. Þessi hópur fer mikinn á samfélagsmiðlum og er yfirleitt fremur orðljótur og öfgafullur. - Þriðji hópurinn er fólk sem hugsar eingöngu um eigin hag og sér ekkert athugavert við að eiga viðskipti við fyrirtæki sem styðja þjóðarmorð. Hér eru einnig þeir sem segjast hlutlausir gagnvart málefninu og gagnast þannig síonistum. - Fjórði hópurinn eru þau sem trúa texta Biblíunnar. Þau trúa á guðsgjöfina, að guðinn hafi gefið útvalinni þjóð land í Palestínu. Allur áróður síonista byggir í raun á fornum sögum um guðsgjöfina - landið er þeirra og engra annarra. - Fimmti hópurinn - sem er fámennur - eru íslenskir síonistar. Síonisminn er byggður á rasisma, þ.e. að einn hópur manna sé öðrum æðri og þar af leiðandi eru íslenskir síonistar rasistar. Ýmsir þekktir einstaklingar tilheyra þessum hópi og eru þeir fremstir í áróðrinum sem er stýrt frá Ísrael og nefnist Hasbara. Gervigreindin skýrir Hasbara sem „starf er felst í því að miðla upplýsingum til alþjóðlegs samfélags, hafa áhrif á almenningsálit og útskýra eða verja stefnu og aðgerðir Ísraels. Þeirra stuðningur við þjóðarmorðið felst m.a í því að rangfæra söguna og ráðast gegn þeim sem styðja mannréttindabaráttu Palestínumanna. Þessir fimm hópar eiga það sameiginlegt að telja Ísrael vera lýðræðisríki. Það er auðvitað rakalaus þvæla þar sem að innan þess svæðis sem Ísrael ræður búa sjö milljón gyðingar - og rúmlega sjö milljón Palestínumenn sem njóta ekki lýðræðislegra réttinda - eru þó um þrjár milljónir þeirra löglegir íbúar Ísraels og hafa atkvæðisrétt í kosningum en takmörkuð önnur réttindi svo sem rétt til búsetu ofl. - en aðrir búa við ólöglegt hernám. Bakgrunnurinn Bakgrunnur núverandi ástands er ólögleg tillaga Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var 29.nóvember 1947 1). Með þeirri samþykkt opnuðust gáttir sem síonistar nýttu sér til að ná fótfestu í Palestínu og skapa það ástand sem ríkir í dag: Þeir hafa náð allri Palestínu á sitt vald og framfylgja áætlunum sínum um að hrekja Palestínumenn (einnig Líbani og Sýrlendinga) burt og byggja Stór Ísrael út fyrir núverandi landamæri. Öllu snúið á haus Söguskoðun sem ríkir hjá ofangreindum hópum er sú að Ísrael, sem er árásaraðilinn frá upphafi, sé að berjast við hópa og ríki sem vilja eyða Ísrael. Það sem er rangt í þessari söguskoðun er að afleiðingin er talin vera orsök. Hamas var stofnað 1987, Hezbollah var stofnað 1982 - samtök sem síonistar segja vera orsök átaka voru stofnuð áratugum eftir að síonistar hófu útrýmingu frumbyggjanna og landstuld, áratugum eftir að Ísrael hafði hrakið milljónir manna á vergang og eytt byggðum þess. Réttur hins kúgaða Ofbeldi elur af sér andstöðu. Baráttusamtök þjóðanna sem búa við ofbeldi Ísraels eru andspyrnuhreyfingar líkar þeim sem börðust gegn nasistaherjum Hitlers á sínum tíma og eru í hávegum hafðar í dag. Þetta er grundvallaratriði. Þjóðir hafa rétt skv. samþykktum Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna (m.a. ályktun 2625) þar sem staðfest er réttmæti baráttu þjóða, sem búa við nýlendustjórn, hernám erlends ríkis eða kynþáttahyggjustjórnir (apartheid), fyrir frelsi með „öllum tiltækum ráðum, þar á meðal vopnaðri baráttu“. Palestínumenn eiga sér yfir 4000 ára sögu í landi sínu. Íslendingar áttu þátt í að svipta þá landi sínu og réttindum árið 1947. Við skuldum þeim - okkur ber því skylda til að ganga fram og berjast með öllum ráðum til að leiðrétta ranglætið. Mikilvægasta skrefið núna er að slíta öllum viðskiptum við Ísrael - á sviði viðskipta, menningar, íþrótta og vísinda. Frjáls Palestína! Höfundur er formaður Félagsins Ísland - Palestína. 1) Bandaríski lagaprófessorinn John B. Quigley (f. 1940) er höfundur bókarinnar Palestine and Israel: A Challenge to Justice. Niðurstaða hans varðandi meðferðina á Palestínumönnum og réttarstöðu þeirra er þessi: „Því hefur verið haldið fram að þótt Palestínu-Arabar hafi um tíma átt rétt til sjálfsákvörðunar hafi þeir fyrirgert þeim rétti með því að stofna ekki eigið ríki eins og lagt var til í ályktun 181.[1] En í ályktun 181, eins og fram hefur komið, er tillaga að lausn sem braut gegn rétti þeirra til sjálfsákvörðunar. Það er því ekki hægt að álíta að þeir hafi fyrirgert réttinum til sjálfsákvörðunar með því að hafna tillögu sem braut gegn þeim rétti þeirra.“ Prófessor Quigley áréttar að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hafi ekki löggjafarvald yfir landsvæðum heimsins. Það hefur aðeins vald til að gefa út tilmæli sem eru ekki bindandi, en ekki til að skipta löndum einhliða eða fyrirskipa fullveldi. Hann heldur því fram að skipting landsvæðisins hafi gengið beint gegn vilja meirihluta frumbyggja (palestínskra araba). Samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna er sjálfsákvörðunarrétturinn grundvallarregla og að þröngva upp skiptingu án samþykkis meirihlutans hafi brotið gegn þeim rétti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmtýr Heiðdal Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun