Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar 21. september 2026 13:02 Um næstu áramót verða miklar kerfis breytingar á heilbrigðis- og matvælaeftirliti hér á landi. Verkefni sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna hafa sinnt færast að stórum hluta til ríkisins, meðal annars til nýrrar Stofnunar atvinnuveganna. Við hjá SVEIT höfum bundið vonir við þessar breytingar. Afgreiðsluhraði hefur að okkar mati oft verið óviðunandi og framkvæmd og túlkun reglna ekki nægilega samræmd. Ósk okkar hefur þó aldrei verið um minni kröfur eða afslátt af reglum. Þvert á móti. Við viljum öflugt heilbrigðis- og matvælaeftirlit, en reglurnar þurfa að vera skýrar, framkvæmd þeirra samræmd og afgreiðsla mála skilvirk. Þess vegna vekur staðan sem lýst var í frétt RÚV um helgina áhyggjur. Þar kom fram að verið sé að segja upp öllum 76 heilbrigðisfulltrúum landsins vegna breytinganna. Á sama tíma hefur enn ekki verið ráðinn forstjóri Stofnunar atvinnuveganna sem tekur við stórum hluta verkefnanna, hvað þá starfsfólk. Þarna segir heilbrigð skynsemi okkur að tíminn sé orðinn knappur. Heilbrigðisfulltrúarnir 76 eru ekki bara stöðugildi. Þetta er fólk með reynslu, sérþekkingu og staðbundna þekkingu sem mikilvægt er að varðveita þegar verkefnin færast yfir í nýtt kerfi. Þegar þessu fólki hefur verið sagt upp, án þess að það viti hvort það fær starf hjá ríkinu, hvar það muni starfa eða á hvaða kjörum, er fullkomlega eðlilegt að það fari að leita sér að annarri vinnu. Og þá vaknar spurning: Hversu mikillar andlegrar viðveru getum við ætlast til af fólki sem búið er að segja upp og er farið að leita sér að næsta starfi? Þetta er ekki gagnrýni á starfsfólkið. Þvert á móti. Fólk þarf að hugsa um sína framtíð og sjá fyrir sér og sínum. En fyrir kerfið skapar þetta augljósa áhættu. Ef reynslumikið starfsfólk fær önnur störf á næstu vikum getur mikil þekking horfið úr kerfinu einmitt þegar mest reynir á yfirfærsluna. Á meðan þarf þjónustan að halda áfram. Heilbrigðiseftirlitin þurfa að afgreiða umsóknir, sinna eftirliti og þjónusta fyrirtæki alveg fram að áramótum. Afgreiðsluhraði hefur þegar verið vandamál og það má ekki gerast að þessi mikla breyting hægi enn frekar á málum fyrirtækja næstu mánuði eða að þau lendi milli gamla og nýja kerfisins. Þetta snýst heldur ekki eingöngu um þjónustu við fyrirtæki. Heilbrigðiseftirlitið þarf að geta brugðist strax við þegar upp koma matarsýkingar eða önnur mál sem geta varðað heilsu almennings. Þar má einfaldlega ekkert bil myndast. Við hjá SVEIT viljum að þessar breytingar takist. Við teljum að þær geti skilað samræmdara regluverki, skýrari ábyrgð og skilvirkara eftirliti. Skilvirkni þýðir ekki minni kröfur. Hún þýðir skýrar kröfur, samræmda framkvæmd og stjórnsýslu sem afgreiðir mál innan eðlilegs tíma. En til þess þarf að tryggja lendinguna núna. Það þarf að ráða stjórnendur og starfsfólk, halda í þekkinguna sem þegar er til staðar og gera fyrirtækjum ljóst hvernig þjónustan verður frá fyrsta degi. Umfram allt þarf að tryggja að þessi stóra kerfisbreyting komi ekki niður á þjónustuþegunum á meðan hún gengur yfir. Þetta er ekki óeðlileg krafa, þetta er heilbrigð skynsemi. Höfundur er framkvæmdastjóri SVEIT – Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Bárðarson Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Skoðun Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Sjá meira
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun