Sport

Dag­skráin: Tvær messur og ensku stór­veldin á ferðinni

Sindri Sverrisson skrifar
Virgil van Dijk og félagar eiga erfiðan leik fyrir höndum í dag.
Virgil van Dijk og félagar eiga erfiðan leik fyrir höndum í dag. Getty/Molly Darlington

Það er meira en nóg af frábæru íþróttaefni á sportrásum Sýnar í dag. Liverpool, Manchester City og Manchester United eiga öll leiki í ensku úrvalsdeildinni, Besta deild karla heldur áfram og NFL Red Zone er komið á sinn stað.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna með því að smella hér.

Á meðal þess helsta í dag má nefna heimsókn Andoni Iraola með Liverpool á hans gamla heimavöll í Bournemouth klukkan 13, á sama tíma og Manchester City mætir Sunderland og Leeds mætir Crystal Palace. Klukkan 15:30 reynir Manchester United svo að komast á beinu brautina með sigri gegn Fulham á útivelli. Enski boltinn er svo gerður upp í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport klukkan 18:25.

Þrír leikir eru samtímis í Bestu deild karla, klukkan 16, og fylgst með þeim öllum á sama tíma í Subway-messunni á Sýn Sport Ísland. ÍA tekur á móti Breiðabliki, Keflavík á móti Fram og ÍBV þarf bráðnauðsynlega á stigum að halda gegn Val í Eyjum. 

FH getur svo farið langt með að tryggja sér áframhaldandi veru í deildinni með sigri gegn Stjörnunni, klukkan 17:30. 

Þá er NFL Red Zone á Sýn Sport 3 en leikur New England Patriots og Pittsburgh Steelers á Sýn Sport 2. Dallas Cowboys og Washington Commanders mætast svo klukkan 20:20.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×