Viðskipti innlent

Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum

Agnar Már Másson skrifar
Wolt er í eigu DoorDash.
Wolt er í eigu DoorDash. Vísir

Wolt á Íslandi tvöfaldaði tekjur sínar í fyrra en fyrirtækið á nú í kjaradeilu við sendla sem lýsa skertum launakjörum. Félagið skilaði rúmlega hundrað milljóna króna hagnaði í fyrra.

Tekjur Wolt á Íslandi (Wolt Enterprises Iceland ehf.) árið 2025 námu 1,2 milljörðum króna, sem er rétt tæplega tvöföldun frá 2024 þegar tekjurnar voru alls um 631 milljón króna. Hagnaður félagsins á árinu nam 107 milljónum króna í fyrra, en árið áður hafði félagið skilað 29 milljóna króna tapi.

Greint var frá því á miðvikudaginn þegar sextíu Wolt-sendlar á Íslandi lögðu niður störf og sögðu að Wolt hefði skert laun sendla. Þessu hafa talsmenn Wolt hafnað. Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ sagði við Vísi í vikunni að verkalýðsfélög hefðu ítrekað reynt að ná samkomulagi við Wolt um að gerður yrði kjarasamningur við starfsmenn en því hefði verið hafnað.

Kostnaður við seldar vörur jókst um 65 prósent

Meðalfjöldi stöðugilda Wolt á Íslandi yfir árið jókst um tíu milli ára og voru samkvæmt ársreikningi 34 árið 2025. Félagið greiddi alls 221 milljón í laun og um 56 milljónir í annan starfsmannakostnað. Launatengdur kostnaður jókst því um þrjátíu prósent á milli ára.

Kostnaðarverð seldra vara jókst um 65 prósent milli ára og var 360 milljónir króna árið 2025.

Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður nam 52 milljónum. Annar kostnaður var að miklu leyti á pari við fyrra ár; afskriftir námu um 6 milljóna króna tapi og annar rekstrarkostnaður nam um 172 milljónum. Rekstrarhagnaður nam því 372 milljónum króna.

Ekki er ljóst hvað skýrir 237 milljóna króna gengistap sem bókfært er hjá fyrirtækinu árið 2025, en það var aðeins 14,3 milljónir króna árið 2024.

Handbært fé í lok árs 2025 var 327,5 milljónir króna, samanborið við 190,5 m.kr. árið áður. Eigið fé félagsins er þá ekki lengur neikvætt en í árslok nam það 77,7 milljónum króna.

Móðurfélagið skilar tapi ár eftir ár

Stjórnin bókar að markaðurinn fyrir matarsendingar á Íslandi sé að verða þroskaðri, en telur áfram vaxtarmöguleika í matvöru, smásölu, öðrum „on-demand“ sendingum, stækkun afhendingarsvæða og fleiri söluaðilum.

Félagið er að öllu leyti í eigu finnska félagsins Wolt Oy, en það er í eigu bandaríska heimsendingarisans DoorDash sem stendur að miklu leyti undir fjármögnun á stækkun félagsins. DoorDash er skráð í bandarísku kauphöllina.

Finnska móðurfélagið hefur þó ítrekað skilað tapi síðustu fimm ár; rekstrartap Wolt Oy nam 643 milljónum evra (89 ma.kr.) árið 2025 að því er Helsingin Sanomat greinir frá. Viðskipti Wolt á Íslandi við móður- og systurfélög námu 327,7 milljónum króna í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×