Sport

Dag­skráin í dag: Víkingar geta orðið Ís­lands­meistarar

Andri Broddason skrifar
Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar með sigri á KR í dag.
Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar með sigri á KR í dag. Vísir/Diego

Það er vægast sagt risastór laugardagur á sportrásum Sýnar og nóg af leikjum til að fylgjast með. Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar þegar liðið fer í heimsókn til KR og fimm leikir eru á dagskrá í enska boltanum.

Úrslitin fara að ráðast í Bestu deild karla en Víkingur er með níu stiga forskot á KR í öðru sæti deildarinnar. Með sigri geta því Víkingar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn en ef KR vinnur heldur liðið veikri von um að stela honum af Víkingunum. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu klukkan13:40 á Sýn Sport Ísland.

Í neðri hluta Bestu deildar karla verður síðan Akureyrarslagur á laugardagskvöldi og má búast við miklum hita í leiknum enda er hann á besta tíma. Bæði lið eru í harðri fallbaráttu og því mikið undir í leiknum. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er sýndur á Sýn Sport Ísland.

Í Bestu deild kvenna fer síðan lokaleikurinn í fyrstu umferð eftir skiptingu deildarinnar þar sem Valur tekur á móti Þór/KA. Bæði lið eru að reyna að forðast fall og þurfa öll þau stig sem þau geta fengið. Leikurinn er sýndur á Sýn Sport Ísland 2 klukkan 15:50.

Bestu mörkin munu svo fara yfir allt það helsta sem gerðist í nýliðinni umferð í Bestu deild kvenna. Þátturinn verður sýndur klukkan 18:05 á Sýn Sport Ísland 2.

Það verður mikið um að vera í enska boltanum í dag og hefst veislan á leik Tottenham og Aston Villa sem byrjar klukkan 11:10 á Sýn Sport. Svo verður nóg um að vera klukkan 13:50 þar sem leikur Everton og Ipswich verður sýndur á Sýn Sport 5, leikur Newcastle og Hull verður sýndur á Sýn Sport 3 og að lokum verður leikur Brighton og Arsenal sýndur á Sýn Sport 2. 

Fyrir þá sem vilja fylgjast með öllum þessum leikjum mun DocZone hefjast klukkan 13:40 á Sýn Sport. Þar mun Hjörvar Hafliðason fá til sín góða gesti og fara yfir allt það helsta sem verður í gangi í boltanum bæði á Englandi og á Íslandi. 

Eftir þáttinn mun svo leikur Nottingham Forest og Coventry vera sýndur klukkan 16:20 á Sýn Sport. Svo um kvöldið munu Laugardagsmörkin hefja göngu sína á Sýn Sport klukkan 18:35 þar sem farið verður yfir allt það helsta sem gerðist í dag.

Á Sýn Sport Viaplay verður einn leikur í ensku B-deildinni á dagskrá og einn leikur í þýsku úrvalsdeildinni. Leikur Birmingham og Middlesbrough hefst klukkan 13:50 og leikur Stuttgart og Dortmund hefst klukkan 16:20.

Fyrir þá sem vilja ekki horfa á fótbolta verður þriðji hringur BMW PGA Championship-mótsins á DP World-mótaröðinni á Sýn Sport 4 þar sem útsending hefst klukkan 11:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×