Margir telji húsnæði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð Sunna Sæmundsdóttir skrifar 16. september 2026 13:49 Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Vísir/Vilhelm Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segist enn þeirrar skoðunar að brottfararmiðstöð fyrir útlendinga eigi að vera sem næst flugvallarsvæðinu. Margir séu þeirrar skoðunar að húsnæðið sem stefnt er að því að hýsi úrrræðið sé of nærri íbúabyggð.
Gangi samningaviðræður eftir verður brottfarastöð fyrir útlendinga sem vísa á úr landi opnuð að Klettatröð 8 á Ásbrú í Reykjanesbæ. Svæðið gengur undir nafninu Tæknivellir og er iðnaðarhverfi á Ásbrú. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segist lítið geta tjáð sig um staðsetninguna þar sem útfærslan liggi ekki endanlega fyrir. Framkvæmdasýslan auglýsti í sumar eftir húsnæði á Suðurnesjum undir starfsemina og samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu bárust alls fjórtán tilboð frá þrettán aðilum. Vilhjálmur segist ekki hafa komið að því að meta fýsileika valkostanna en bendir á að bæjarstjórn hafi komið þeim skilaboðum á framfæri að úrræðið ætti að vera fjarri íbúabyggð. Í auglýsingu Framkvæmdasýslunnar kom einmitt fram að húsnæðið ætti ekki að vera nærri íbúabyggð en auk þess var gerð krafa um það gæti hýst allt að þrjátíu manns. Þá ætti að vera til staðar afgirt útisvæði eða að möguleiki væri á að útbúa slíkt svæði Eigi að vera sem næst flugstöðinni Vilhjálmur hefur viðrað þá skoðun að úrræðið ætti heima innan flugvallarsvæðisins. „Það er ennþá okkar skoðun að við viljum að öll opin úrræði fari af svæðinu og að þetta sé sem næst flugstöðinni. Finnst þér þetta vera of nærri íbúabyggð á Ásbrú? Það eru margir þeirrar skoðunar að þetta sé nærri íbúabyggð. En hver er þín skoðun? Ég þarf bara að fá að vita nákvæmlega hvernig útfærslan verður og nákvæmlega hvaða starfsemi verður í húsinu áður en það er hægt að taka afstöðu til þess,“ segir Vilhjálmur. Stefnt er að því að opna úrræðið 1. desember næstkomandi, líkt og gert er ráð fyrir í lögum.
Brottfararstöð fyrir útlendinga Hælisleitendur Reykjanesbær Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira