Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar 3. september 2026 18:00 Í stjórnsýslunni gildir svokölluð málshraðaregla. Hún felur það í sér að ákvarðanir skulu teknar svo fljótt sem unnt er. Það er hinsvegar í flestum tilvikum í höndum stjórnvaldanna sjálfra að ákveða hvað telst hæfilegur tími. Venjulega líða mánuðir frekar en vikur þar til erindi eru afgreidd og stundum þarf fólk að bíða árum saman eftir niðurstöðu. Á næstu vikum ætla ég að segja ykkur nokkrar málshraðasögur úr stjórnsýslunni. Sannar sögur, eina í senn. Af nógu er að taka en ég ætla að byrja á því að segja ykkur frá þrautagöngu umsækjanda um alþjóðlega vernd. Hann hefur góðfúslega gefið mér leyfi til þess að segja sögu sína opinberlega. Málshraðasaga nr. 1 — Hælisleitandinn Undir lok ársins 2022 kom hingað til lands Sýrlendingur og sótti um alþjóðlega vernd. Maki umsækjandans var þá staddur í Sýrlandi og hafði enga möguleika á að komast þaðan. Það tók Útlendingastofnun meira en 10 mánuði að komast að þeirri niðurstöðu að umsækjandinn ætti ekki rétt á stöðu flóttamanns enda hafði hann ríkisborgararétt í Venesúela, landi sem Íslenska ríkið telur öruggt en mannréttindasamtök telja hættulegt. Maki umsækjandans hefur aftur á móti hvergi ríkisborgararétt nema í Sýrlandi. Ákvörðun Útlendingastofnunar var kærð til kærunefndar útlendingamála sem var með málið til meðferðar í hálft ár. Það er því miður ekkert óvenjulega langur tími. Kærunefndin vísaði málinu aftur til Útlendingastofnunar þar sem málsmeðferðin hafði verið gölluð, þrátt fyrir að hafa tekið 10 mánuði. Enda þótt starfsmenn Útlendingastofnunar hefðu þegar farið í gegnum málsgögnin og nýrri, ítarlegri greinargerð hefði verið skilað, vildi stofnunin fá fleiri gögn og frekari útskýringar. Seinni hluta júlí (sem er venjulegur sumarfrístími lögmanna) fékk ég þrjá virka daga til að svara ellefu umfangsmiklum spurningum frá Útlendingastofnun sem þjónuðu greinilega þeim tilgangi einum að reyna að finna einhvern veikan þráð í frásögn umsækjandans. Þrjá daga í miðju sumarfríi. Því þótt útlendingayfirvöld séu ekki bundin af frestum þá setja þau þolendum sínum (og lögmönnum þeirra) stundum mjög skamma fresti. Umsækjandinn talar enga ensku og ég fékk ekki túlk sem talar mál hans á þessum árstíma með svo skömmum fyrirvara svo við töluðum saman í gegnum þýðingarforrit. Ég bað ekki um lengri frest enda vonaði ég að nú væru menn að spýta í lófana hjá Útlendingastofnun. Ísraelsher gerði árás á heimabæ umsækjandans einmitt á meðan ég var að taka saman þessar umfangsmiklu viðbótarupplýsingar að beiðni Útlendingastofnunar. Faðir hans og tveir aðrir nánir ættingjar létu lífið í árásinni. Hann fékk þær fréttir að maki hans og börn voru horfin og sex dagar liðu þar til hann náði sambandi við þau. Á meðan beið hann í angist eftir fréttum af því hvort þeim hefði tekist að flýja eða hvort þau hefðu dáið í árásinni. Ekki komu þessar fréttir neinni hreyfingu á málið hjá Útlendingastofnun en ég lét að sjálfsögðu vita af þessu. Í lok ágúst 2025 voru starfsmenn stofnunarinnar hættir að svara mér. Ég sneri mér til Umboðsmanns Alþingis og kvartaði undan málshraðanum. Umboðsmaður taldi að þar sem þetta væri ný málsmeðferð hjá Útlendingastofnun væri ekki um óeðlilega langan málsmeðferðartíma að ræða. Sjónarmið umsækjandans var „eftir tveggja og hálfs árs bið á ég engan möguleika á að forða fjölskyldu minni úr lífsháska“. Sjónarmið Umboðsmanns Alþingis var „Útlendingastofnun er með glænýtt mál og ekkert óeðlilegt að umsækjandinn þurfi að bíða“. Útlendingastofnun tók loks ákvörðun í desember 2025, þá vantaði fjóra daga upp á að maðurinn hefði beðið í óvissu á Íslandi í þrjú ár. Umsækjandanum var veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum, sem merkir að maki hans getur ekki komið til Íslands á grundvelli fjölskyldusameiningar, svo rík er mannúðin gagnvart stríðshrjáðu fólki. Ákvörðun Útlendingastofnunar var kærð 7. janúar sl. Kærunefnd útlendingamála er enn ekki búin að úrskurða í málinu og segist ekki reikna með að það verði á næstunni. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eva Hauksdóttir Hælisleitendur Sýrland Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar