Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar 1. september 2026 08:32 Við sögðum nei við viðræðum. Við vorum ekki spurð um afturköllun umsóknarinnar. Á laugardaginn töpuðum við sem vildum að Ísland hæfi aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Ég varð fyrir vonbrigðum. Það ætla ég ekkert að fela. Ég hafði lagt mikla vinnu í að kynna mér málið, skrifa um það og færa rök fyrir því að við ættum að setjast aftur að samningaborðinu, sjá hvað Íslandi stæði raunverulega til boða og taka síðan afstöðu til niðurstöðunnar. Meirihluti þjóðarinnar komst að annarri niðurstöðu og þá niðurstöðu ber að virða. 118.040 kjósendur sögðu nei og 105.339 sögðu já. Munurinn var 12.701 atkvæði, 52,84% gegn 47,16%. Niðurstaðan var skýr, en hún sýnir jafnframt þjóð sem er langt frá því að vera einhuga í málinu. Aðildarviðræður eiga því ekki að hefjast að nýju núna. Það var spurningin sem lögð var fyrir þjóðina og henni var svarað. En varla var talningu lokið þegar fram komu kröfur um annað og meira: að aðildarumsókn Íslands frá árinu 2009 yrði formlega dregin til baka. Þar staldra ég við. Því það var ekki spurningin sem ég svaraði á kjörseðlinum og það var ekki spurningin sem neinn annar kjósandi svaraði heldur. Hvað var þjóðin spurð um? Spurningin var skýr: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Svarkostirnir voru já og nei. Þjóðin var ekki spurð: „Á Ísland að draga aðildarumsókn sína að Evrópusambandinu til baka?“ Þetta eru ekki sömu spurningarnar. Það má vissulega færa rök fyrir því að eðlilegt sé að afturkalla umsóknina fyrst meirihlutinn hefur hafnað því að hefja viðræður að nýju. Um það má hafa fullkomlega heiðarlega pólitíska skoðun. En það er annað en að halda því fram að þjóðin hafi þegar tekið þá ákvörðun. Það gerði hún ekki. Umsóknin sem aldrei var formlega afturkölluð Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu árið 2009 eftir samþykkt Alþingis. Viðræðurnar hófust árið eftir en voru settar á ís árið 2013. Árið 2014 lagði þáverandi ríkisstjórn fram þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka. Sú tillaga náði ekki fram að ganga. Árið 2015 sendi utanríkisráðherra þess í stað bréf til ESB þar sem fram kom að ríkisstjórnin hygðist ekki halda viðræðunum áfram og óskaði eftir að Ísland yrði ekki lengur talið umsóknarríki. Þetta er ástæðan fyrir því að við erum að ræða málið enn í dag. Umsóknin var ekki formlega afturkölluð. Það er heldur ekki eitthvert nýtt orðhengilsháttaratriði. Ágreiningurinn um stöðu hennar hefur staðið árum saman og nú er einmitt kallað eftir formlegri afturköllun vegna þess að sú afturköllun átti sér ekki stað árið 2015. Nei þýðir nei. En við hverju? Hér koma sterkustu mótrökin. Þjóðin sagði nei. Eigum við þá ekki einfaldlega að ganga frá málinu? Ég skil þá röksemd. En í þjóðaratkvæðagreiðslu skiptir máli við hverju þjóðin sagði nei. Hún sagði nei við því að hefja aðildarviðræður að nýju. Það umboð er skýrt. Þessi ríkisstjórn á ekki að hefja aðildarviðræður. Punktur. Formleg afturköllun umsóknarinnar er hins vegar annað skref. Það er ekki aðeins ákvörðun um hvað við gerum í dag. Hún varðar líka þá stöðu sem Ísland vill skilja eftir fyrir framtíðina. Þess vegna finnst mér hæpið að segja eftir á að nei-atkvæði hafi falið í sér meira en stóð á kjörseðlinum. Ef afturköllun umsóknarinnar átti að vera sjálfkrafa afleiðing þess að nei yrði ofan á, hefði átt að segja kjósendum það skýrt áður en þeir greiddu atkvæði. Það var ekki gert. Þarf þá að kjósa aftur? Ekki endilega. Ég hef ekki fundið skýra lagastoð fyrir því að stjórnarskrá eða lög krefjist annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu áður en umsóknin getur verið afturkölluð. Það væri því rangt af mér að halda því fram. En lýðræðislega spurningin stendur eftir. Ef stjórnmálamenn vilja réttlæta afturköllunina með því að segja að þjóðin hafi ákveðið hana, þá hljótum við að mega spyrja: Hvar tók þjóðin þá ákvörðun? Hún var ekki á kjörseðlinum. Ef stjórnmálamenn telja að svo stór ákvörðun eigi sérstaklega að byggjast á vilja þjóðarinnar, væri þá ekki eðlilegra að spyrja þjóðina beinlínis um hana en að leggja henni þá afstöðu í munn eftir á? Hvað vinnum við með því að loka málinu formlega? Við sem viljum ekki afturkalla umsóknina verðum líka að vera heiðarleg. Gamla umsóknin er engin töfralausn. Hún tryggir ekki að Ísland geti eftir fimm, tíu eða tuttugu ár einfaldlega sest aftur að samningaborðinu og haldið áfram nákvæmlega þar sem frá var horfið. Ísland hefur breyst. Evrópusambandið hefur breyst. Löggjöf og samningsrammar þróast. Það er því fullkomlega réttmæt spurning hvort gamla umsóknin hafi mikið hagnýtt gildi til framtíðar. En þá kemur hin spurningin á móti: Hvað vinnur Ísland með því að afturkalla hana formlega núna? Við höfum þegar ákveðið að hefja ekki viðræðurnar að nýju. Enginn aðildarsamningur verður gerður. Ísland gengur ekki í Evrópusambandið. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verður virt. Það er því engin þörf á formlegri afturköllun til þess að framfylgja þeirri ákvörðun sem þjóðin tók. Hvers vegna liggur þá svona mikið á að taka annað skref sem þjóðin var ekki spurð um? Meirihluti ræður, en umboðið hefur mörk 118.040 kjósendur sögðu nei og 105.339 sögðu já. Munurinn var 12.701 atkvæði. Það breytir engu um hver vann kosningarnar. En tölurnar sýna þjóð sem er klofin í málinu. Meira en 105 þúsund Íslendingar kusu beinlínis að viðræðurnar yrðu teknar upp að nýju. Það breytir ekki niðurstöðunni, en það ætti að minna okkur á mikilvægi þess að túlka umboð kosninganna nákvæmlega. Við sem kusum já getum ekki sagt að 47,16% atkvæða veiti ríkisstjórninni umboð til að hefja viðræður. Við töpuðum kosningunni. Á sama hátt er ekki hægt að láta 52,84% nei-atkvæði svara annarri spurningu sem aldrei var lögð fyrir kjósendur. Meirihlutinn fékk umboð sitt í þeirri spurningu sem stóð á kjörseðlinum, ekki annarri. Það er ekki vanvirðing við meirihlutann. Þvert á móti er það virðing fyrir lýðræðinu að túlka niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu nákvæmlega, hvorki þrengra né víðar en tilefni er til. Ekki læsa dyrunum Fyrir kosningarnar skrifaði ég grein undir fyrirsögninni Hvaða dyr eigum við að hafa opnar? Ég færði þar rök fyrir því að Ísland væri nógu sterkt til að setjast að samningaborðinu, sjá hvað okkur stæði til boða og leyfa þjóðinni síðan að taka endanlega ákvörðun. Meirihluti þjóðarinnar var mér ósammála. Ég kaus já. Ég tapaði þeirri kosningu og þá niðurstöðu ber mér að virða. Þess vegna verða aðildarviðræður ekki hafnar að nýju núna. En virðing fyrir lýðræðinu felst líka í því að leggja ekki meira í niðurstöðu kosninga en kjósendur voru spurðir um. Við vorum ekki spurð hvort afturkalla ætti umsókn Íslands. Það er önnur spurning. Kannski kemur sá dagur að Alþingi ákveði að draga umsóknina formlega til baka. Kannski verða færð fyrir því sannfærandi rök. Þá eigum við að ræða þau af sömu alvöru og önnur stór utanríkispólitísk mál. En ekki segja að þjóðin hafi þegar tekið þá ákvörðun. Hún gerði það ekki. Meirihluti þjóðarinnar ákvað 29. ágúst að við skyldum ekki ganga inn um þessar dyr núna. Það virði ég. En þjóðin var aldrei spurð hvort hún vildi læsa þeim og henda lyklinum. Höfundur er með BA í frönsku og spænsku frá Háskóla Íslands, meistaranemi í fötlunarfræði við Háskóla Íslands, leiðsögumaður og fararstjóri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar