Menning

Þór­dís Zoëga sló í gegn í Kaup­manna­höfn

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listakonan Þórdís Erla Zoëga stóð fyrir farsælli sýningaropnun í Íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn í síðustu viku.
Listakonan Þórdís Erla Zoëga stóð fyrir farsælli sýningaropnun í Íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Astrid Ubagh

Fullt var út úr dyrum þegar listakonan Þórdís Erla Zoëga opnaði sýninguna Samrými í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn 27. ágúst síðastliðinn. Sýningin fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra.

Þórdís, sem er fædd árið 1988, hefur sýnt verk sín víða, meðal annars í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Helsinki, Amsterdam, Berlín og Basel, auk þess að taka þátt í sýningum í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og á Listahátíð í Reykjavík. 

Hún var úti í tilefni af þátttöku sinni á Norrænu listamessunni Chart Art Fair, þar sem hún sýndi verk í samstarfi við Berg Contemporary í Reykjavík. Þórdís starfar einnig með danska galleríinu SPECTA í Kaupmannahöfn og mun halda einkasýningu þar í nóvember næstkomandi. Sýningin í sendiráðinu stendur til 11. nóvember næstkomandi.

Í fréttatilkynningu segir:

„Sýningin Samrými/Common Space/Fællesrum fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra. Manneskjan leitast við að eiga sitt eigið svæði en sækir á sama tíma í að tilheyra stærra samfélagi. 

Samfélagið getur verið líkamlegt innan viss landsvæðis en einnig ósýnilegt, stafrænt rými sem við deilum í skýjunum. Einkarými er þannig orðið sífellt huglægara hugtak; þótt við leitumst við að eignast okkar eigin blett, viljum við hafa frelsið til að ferðast um sameiginleg og ósýnileg rými.

Í sendiráðinu fá þessar spurningar sérstaka merkingu þar sem þjóðir fá sinn eigin landskika til umráða innan annars lands þar sem líkamlega og huglæga rýmið skarast.“

Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni:

Viktoría Hlín Ágústsdóttir, Elfur Örlygsdóttir og Eir Örlygsdóttir í góðum fíling.Astrid Ubagh
Verk Þórdísar eru bæði speglandi og gegnsæ.Astrid Ubagh
Stefanía K. Bjarnadóttir frá sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn og Kristjana Rós Oddsdóttir Guðjohnsen frá Íslandsstofu.Astrid Ubagh
Fólk lyfti glösum fyrir listinni. Í sófanum sitja Sandra Gunnarsdóttir, Amna Hasecic og Magnús Jóhann Ragnarsson.Astrid Ubagh
Listin sameinar fólk! Astrid Ubagh
Fólk mætti í sínu fínasta pússi.Astrid Ubagh
Cecilie C. Ragnheiðardóttir Gaihede forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar og Katrín Elvarsdóttir.Astrid Ubagh
Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Þórdís Erla Zoega listakona og Cecilie C. Ragnheiðardóttir Gaihede forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar.Astrid Ubagh
Fólk var í góðum gír í dönsku sólinni.Astrid Ubagh
Gleðin var í loftinu.Astrid Ubagh
Knús og kram.Astrid Ubagh
Halla Helgadóttir forstöðumaður Hönnunarmiðstöðvar, Loji Höskuldsson myndlistarmaður, Halla Benediktsdóttir forstöðumaður Jónshúss og Stefanía K. Bjarnadóttir hjá Íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn.Astrid Ubagh
Björk Hrafnsdóttir sýningarstjóri og Magnús Jóhann píanóleikari á spjalli hér til hægri.Astrid Ubagh
Pétur Geir myndlistarmaður spjallaði við Ásdísi Björgu.Astrid Ubagh
Fjöldi fólks kom saman á sýningu Þórdísar.Astrid Ubagh
Aldís Guðmundsdóttir, ungur listunnandi og Ásdís Björg Ágústsdóttir.Astrid Ubagh
Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari mætti með dóttur sinni Hugrúnu Eglu Einarsdóttur. Astrid Ubagh
Stefanía K. Bjarnadóttir ávarpaði gesti. Astrid Ubagh
Í verkaröðinni Interspace vinnur Þórdís Erla Zoëga með geometríska formgerð fána Norðurlandanna. Litir og hlutföll fánanna eru brotin niður og endursköpuð í gegnsæjum akrýlverkum með litbreytifilmu þar sem til verða svokölluð ómöguleg rými.Astrid Ubagh
Una Jóna Sigurðardóttir og séra Guðni Már sendiráðsprestur í Danmörku slá á létta strengi. Astrid Ubagh
Gestir tylltu sér út og nutu sólarinnar.Astrid Ubagh
Verk Þórdísar speglast einstaklega skemmtilega.Astrid Ubagh
Listrænt spjall.Astrid Ubagh
Þórdís Zoega, Björk Hrafnsdóttir, Iona Sjöfn Huntington-Williams og Helga Páley.Astrid Ubagh
Stefanía K. Bjarnadóttir og Katrín Katla Sverrisdóttir. Astrid Ubagh
Björk Hrafnsdóttir, Pétur Geir og Magnús Jóhann.Astrid Ubagh
Andlit mætast á einstakan hátt í gegnum verk Þórdísar. Astrid Ubagh
Þórdís Erla og Ingibjörg Jónsdòttir, gallerís-stjóri Berg Contemporary. Astrid Ubagh





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.