Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar 30. ágúst 2026 12:00 Nú er búið að slá þessa vegferð út af borðinu að sinni. Mikið var rætt og ritað um málið á stuttum tíma og það sem var eftirtektarvert var hversu margir töldu að hægt væri að lagfæra ranglæti og spillingu sem hér þrífst með inngöngu í Evrópusambandið. Það er þó svo að hér getur fólk reynt að hafa áhrif á valdamikla einstaklinga og hópa sem búa í návígi þeirra og nú hefur myndast mikill kraftur sem kann að vera áttlaus. Við erum nýbúin að sjá að við getum sameinast óháð flokkspólitík og við getum haldið því áfram. Nú er tækifæri til að sameinast að baki nokkuð einföldum kröfum sem eru bæði sanngjarnar og augljósar. Kröfu um óhagnaðardrifna banka (gætum kallað hann íbúðalánasjóð). Kröfu um heilbrigðiskerfi sem endurspeglar það ríka samfélag sem Ísland er. Kröfu um mjög neikvæða hvata þegar kemur að söfnun fasteigna af hálfu einstaklinga og lögaðila sem er mjög stór hluti vandans. Og síðast en alls ekki síst kröfu um að arður af sjávarauðlindunum renni fyrst og fremst til þjóðarinnar en sé ekki að búa til og viðhalda ólígörkum í þessu litla samfélagi sem belgjast út og sölsa allt undir sig á kostnað þjóðfélagsins alls. Hvernig væri það? Er hægt að búa til sömu hreyfingu í kringum svona kröfur? Er hægt að tala jafn mikið um það og skrifa? Er hægt að vera með jafn margar skoðanakannanir sem endurspegla raunverulegan vilja þjóðarinnar eins og gert var um heilbrigðiskerfið? Bara svona til þess að okkur liði öllum betur hérna. Líka þeim sem týndir eru í græðgi sinni og valdabrölti. Væri það ekki ráð? Höfundur er heimspekingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Nú er búið að slá þessa vegferð út af borðinu að sinni. Mikið var rætt og ritað um málið á stuttum tíma og það sem var eftirtektarvert var hversu margir töldu að hægt væri að lagfæra ranglæti og spillingu sem hér þrífst með inngöngu í Evrópusambandið. Það er þó svo að hér getur fólk reynt að hafa áhrif á valdamikla einstaklinga og hópa sem búa í návígi þeirra og nú hefur myndast mikill kraftur sem kann að vera áttlaus. Við erum nýbúin að sjá að við getum sameinast óháð flokkspólitík og við getum haldið því áfram. Nú er tækifæri til að sameinast að baki nokkuð einföldum kröfum sem eru bæði sanngjarnar og augljósar. Kröfu um óhagnaðardrifna banka (gætum kallað hann íbúðalánasjóð). Kröfu um heilbrigðiskerfi sem endurspeglar það ríka samfélag sem Ísland er. Kröfu um mjög neikvæða hvata þegar kemur að söfnun fasteigna af hálfu einstaklinga og lögaðila sem er mjög stór hluti vandans. Og síðast en alls ekki síst kröfu um að arður af sjávarauðlindunum renni fyrst og fremst til þjóðarinnar en sé ekki að búa til og viðhalda ólígörkum í þessu litla samfélagi sem belgjast út og sölsa allt undir sig á kostnað þjóðfélagsins alls. Hvernig væri það? Er hægt að búa til sömu hreyfingu í kringum svona kröfur? Er hægt að tala jafn mikið um það og skrifa? Er hægt að vera með jafn margar skoðanakannanir sem endurspegla raunverulegan vilja þjóðarinnar eins og gert var um heilbrigðiskerfið? Bara svona til þess að okkur liði öllum betur hérna. Líka þeim sem týndir eru í græðgi sinni og valdabrölti. Væri það ekki ráð? Höfundur er heimspekingur.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar