Sport

Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum

Andri Broddason skrifar
Linda Líf Boama hefur gengið til liðs við Charlton í ensku WSL-deildinni.
Linda Líf Boama hefur gengið til liðs við Charlton í ensku WSL-deildinni. cafcwomen

Linda Líf Boama, landsliðskona í fótbolta, er að ganga í raðir Charlton í ensku úrvalsdeildinni. Hún kemur þaðan frá Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hefur spilað síðan í vetur.

Linda Líf Boama er frekar ný í landsliðshópnum en hún vakti athygli þegar hún gekk til liðs við Kristianstad í vetur. Þar hefur henni gengið vel og verið einn af lykilmönnum liðsins. Kristianstad er staðsett í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en pakkinn í kringum félagið er mjög þéttur.

Frammistaða Lindu Lífar hefur verið það góð að hún hefur heillað forsvarsmenn Charlton sem leikur í ensku WSL-deildinni. Hún skrifar undir þriggja ára samning við félagið og ætti að vera klár fyrir fyrsta leik tímabilsins sem hefst 6. september. Þar fær Charlton Liverpool í fyrsta leik en liðið er í fyrsta sinn að leika í úrvalsdeildinni.

Charlton spilaði við Leicester í umspili um síðasta sætið í WSL-deildinni á síðasta tímabili. Leikurinn fór 0-0 en Charlton vann eftir vítaspyrnukeppni.

Albert Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kristianstad, talar fallegum orðum um Lindu Líf.

„Við erum stolt af ferðalaginu sem hún á fyrir höndum og bætingunni sem hún hefur sýnt hjá Kristianstad. Að hún sé núna að fá tækifæri til að spila fyrir stærra félag í stærri deild sýnir hver árangurinn hennar hjá félaginu hefur verið bæði innan og utan vallar,“

„Við óskum henni alls hins besta hjá Charlton og í WSL-deildinni. Linda mun skilja eftir gat sem erfitt verður að fylla en síðustu mánuði hafa aðrir leikmenn styrkt sóknarleikinn okkar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×