Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar 28. ágúst 2026 21:31 Það hefur verið sorglegt að sjá hversu miklu hefur verið logið í kosningabaráttunni. Fjársterkir aðilar hafa fjárfest hundruð milljóna í að ljúga að fólki og stjórnmálafólk hefur farið hamförum í að útbreiða lygarnar og fjölmiðlar hafa algerlega brugðist í að leiðrétta þær. Ein lygi sker sig úr í stærð, ósvífni og umfangi og hefur getið af sér margar minni lygar. Það er lygin um hvað er kosið. Lygin um að við séum í dag að kjósa um að ganga í Evrópusambandið eða ekki. Á kjörseðlinum stendur skýrt „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Ekki eitt einasta orð um að ganga í ESB enda er ekki kosið um það núna. Það verður kosið um það síðar. Lygin um að atkvæðagreiðslan í dag sé um að Ísland gangi í ESB hefur í raun eyðilagt uppbyggjandi umræðu í kosningabaráttunni og af stóru lyginni hafa sprottið margar minni eins og sést af þessum dæmum. Það er lygi að Ísland missi eitthvað af fullveldi sínu ef þú segir já í dag. Það er lygi að hagur bænda versni ef þú segir já í dag. Það er lygi að við missum yfirráð yfir sjávarútveginum ef þú segir já í dag. Það er lygi að við missum forræði yfir orkuauðlindunum ef þú segir já í dag. Þannig mætti lengi telja. Látum ekki hagsmunaöfl ljúga að okkur stundinni lengur. Fólk er ekki fífl. Segjum JÁ í dag, sjáum samninginn og tökumst síðan á með sannleikann að vopni. P.S. Þó við segjum nei við samningnum í seinni atkvæðagreiðslunni þegar kosið verður um aðild að ESB eða ekki verður gott að hafa hagstæðan samning á kantinum ef á þarf að halda í framtíðinni. Það væri líka frábært ef þjóðin þarf aldrei aftur að rífast um hvað verður í samningi við ESB. Höfundur er hönnuður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Það hefur verið sorglegt að sjá hversu miklu hefur verið logið í kosningabaráttunni. Fjársterkir aðilar hafa fjárfest hundruð milljóna í að ljúga að fólki og stjórnmálafólk hefur farið hamförum í að útbreiða lygarnar og fjölmiðlar hafa algerlega brugðist í að leiðrétta þær. Ein lygi sker sig úr í stærð, ósvífni og umfangi og hefur getið af sér margar minni lygar. Það er lygin um hvað er kosið. Lygin um að við séum í dag að kjósa um að ganga í Evrópusambandið eða ekki. Á kjörseðlinum stendur skýrt „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Ekki eitt einasta orð um að ganga í ESB enda er ekki kosið um það núna. Það verður kosið um það síðar. Lygin um að atkvæðagreiðslan í dag sé um að Ísland gangi í ESB hefur í raun eyðilagt uppbyggjandi umræðu í kosningabaráttunni og af stóru lyginni hafa sprottið margar minni eins og sést af þessum dæmum. Það er lygi að Ísland missi eitthvað af fullveldi sínu ef þú segir já í dag. Það er lygi að hagur bænda versni ef þú segir já í dag. Það er lygi að við missum yfirráð yfir sjávarútveginum ef þú segir já í dag. Það er lygi að við missum forræði yfir orkuauðlindunum ef þú segir já í dag. Þannig mætti lengi telja. Látum ekki hagsmunaöfl ljúga að okkur stundinni lengur. Fólk er ekki fífl. Segjum JÁ í dag, sjáum samninginn og tökumst síðan á með sannleikann að vopni. P.S. Þó við segjum nei við samningnum í seinni atkvæðagreiðslunni þegar kosið verður um aðild að ESB eða ekki verður gott að hafa hagstæðan samning á kantinum ef á þarf að halda í framtíðinni. Það væri líka frábært ef þjóðin þarf aldrei aftur að rífast um hvað verður í samningi við ESB. Höfundur er hönnuður.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar