Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. ágúst 2026 20:32 Michael Olise átti stórkostlegt tímabil í fyrra og byrjaði þetta með marki. getty/Sven Hoppe Bayern München sigraði Stuttgart, 5-1, á Allianz Arena í upphafsleik þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Leikmaður Stuttgart skoraði fyrir bæði lið í leiknum.
Bayern hefur orðið þýskur meistari undanfarin tvö ár og þrettán sinnum á síðustu fjórtán árum. Stuttgart endaði í 4. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og tryggði sér þátttökurétt í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu. Dayot Upamecano skoraði fyrsta mark leiksins, og fyrsta mark tímabilsins í þýsku úrvalsdeildinni, með skalla eftir hornspyrnu Joshuas Kimmich á 21. mínútu. Á 52. mínútu jafnaði Josha Vagnoman metin fyrir Stuttgart. Gleði gestanna var þó skammvinn því þremur mínútum síðar kom Michael Olise heimamönnum aftur yfir eftir stungusendingu frá Kimmich. Á 57. mínútu skoraði Vagnoman aftur en nú í vitlaust mark og Bæjarar komnir með 3-1 forystu. Undir lokin bætti Bayern svo tveimur mörkum við. Fyrst skoraði Aleksandar Pavlovic á 82. mínútu og þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma gerði Luis Díaz fimmta mark meistaranna. Ismael Saibari, sem sló í gegn með Marokkó á HM í sumar, lagði síðustu tvö mörk Bayern upp. Næsti leikur Bayern er gegn B-deildarliði Osnabrück í þýsku bikarkeppninni á miðvikudaginn.
Þýski boltinn Mest lesið Kristján sigraði Bakgarðshlaupið Sport Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Fótbolti Ellefu ára senuþjófur fékk að vaka: „Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann pepp“ Sport Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Enski boltinn Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blálokin Fótbolti Aðalmarkvörður Íslands úr leik og Arnar kallaði á Anton Fótbolti Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Enski boltinn „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Íslenski boltinn Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Handbolti Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Íslendingarnir sáu um frækinn sigur en Kristall fékk rautt „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ „Svo kemur bara mark eftir mark eftir mark“ „Hefði verið sætt að ná þrennu í fyrri hálfleik“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið „Ætlum að halda áfram að vera hugrakkir“ Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blálokin Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Aðalmarkvörður Íslands úr leik og Arnar kallaði á Anton Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Stefán Ingi skoraði í jafntefli Guðlaugur náði í stig gegn Mikael og Daníel eftir dramatík Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Stefán Teitur skoraði Brynjar skoraði í sigri Sønderjyske Atlético vann Madrídarslaginn Rangers vann Celtic Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Ótrúlegt atvik í Taílandi þegar Townsend varð fyrir valtara Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö „Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Sjá meira